fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni fyrir andsvarið. Sannarlega rétt að mínúta er fljót að líða, en núna hef ég sem betur fer tvær einhverra hluta vegna.(Gripið fram í: Já.) Þar fór það.
Ég held að það sé nauðsynlegt að horfa til þess, eins og ég kom inn á í ræðu minni, og á þeim nótum var efnislega rætt í nefndinni og kemur fram í fyrirvara hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar, að menn horfi til þess að stíga skref til baka hvað almennu gjaldheimtuna varðar á umferð sem er mjög mikil í okkar samfélagi. Ég held annars vegar að það sé svarið, hins vegar mögulegar lausnir á útfærslu á umbreytingu ríkiseigna eins og til að mynda ég og hv. þm. Óli Björn Kárason höfum talað fyrir að verði skoðað. Lykilatriðið er alla vega að gjaldtakan verði mjög hófleg og útfærð þannig að magnafslættir séu til staðar fyrir þá sem nota mörg gjaldhlið t.d. á hverjum degi (Forseti hringir.) og þar fram eftir götunum, og að ábatinn verði alveg (Forseti hringir.) greinilegur og áþreifanlegur fyrir þá sem vegakerfið nota.