149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[18:00]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta svar. Það er nefnilega málið að við þurfum að tala mjög skýrt í þessu til þess að minnka þennan óróleika. Við þekkjum alveg söguna um umræðuna um samgöngumálin. Það hefur verið þannig í gegnum árin að það hefur verið útdeilt einhverjum peningum og síðan fara menn að rífast um hvaða vegi eigi að fara í. En það sem slær mig vel í þessari hugmynd er að þetta er heildstæð áætlun og það verður farið eftir einhverjum tímaramma í hverja aðgerð fyrir sig, þannig að óróleikinn í dag snýr aðallega að kostnaðarhliðinni. Það sem þingmaðurinn kom inn á, afslættir og annað slíkt í gjaldtöku, hljómar mjög vel í mínum eyrum. Ég held að reynsla okkar af (Forseti hringir.) Hvalfjarðargöngum og öðru slíku hafi verið mjög góð. Ég tel mikilvægt að það sé mjög skýrt talað í þessum undirbúningi þannig að (Forseti hringir.) fólkið í landinu verði rólegra yfir þessu þegar að framkvæmdum kemur.