149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[18:03]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti vill átelja framkomu hv. þingmanna Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björns Levís Gunnarssonar við upphaf ræðu hv. þm. Bergþórs Ólasonar hér áðan.

Jafnframt vill forseti minna á orð fyrrverandi forseta þingsins sem sögð voru við álíka tilefni í þingsal í nóvember 2012 þegar hann sagði að atvik af þessum toga væru ekki við hæfi og að í þessum sal tjáðu menn sjónarmið sín og viðhorf úr ræðustóli.