149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[18:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Jón Gunnarsson) (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Að gefnu tilefni vil ég nefna að ég notaði þetta orðalag áðan vegna spurninga hv. þingmanns til mín í kjölfar ræðu minnar og framsögu á nefndaráliti meiri hlutans um samgöngumál. Spurningarnar voru þess eðlis að þær bentu til þess að hv. þingmaður hefði alls ekki verið að fylgjast með á þeim fundum sem voru nýlega haldnir í nefndinni. Svörin við þeim spurningum og útúrsnúningarnir sem fólust í spurningunum gátu ekki bent til annars.

Já, ég lagði spurningu fyrir hv. formann nefndarinnar áðan um málsatvik við umfjöllun um þetta mál, að gefnu tilefni, vegna orða hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur, um að þetta hefði verið borið upp og átt að afgreiðast í gegn á einni viku, hvort það væri rétt að mér hefðu verið færð þau skilaboð til að færa hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) að ákveðinn grundvöllur væri í minni hlutanum til að ljúka málinu á þeim tillögum sem voru búnar að vera til kynningar (Forseti hringir.) og umræðu. Það var staðfest af hv. formanni þannig að (Forseti hringir.) það liggur í augum uppi að hv. þingmaður var að tala gegn betri vitund.