fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Það er eitt og annað sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í. Ég byrja á að spyrja hv. þingmann hvort hún kannist við að þann 4. desember síðastliðinn, á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, hafi hún lagt til, ásamt öðrum nefndarmanni, hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni, að einhverjir fulltrúar í minni hlutanum færu með þeim upp í ráðuneyti til að vinna að útfærslu á breytingum á samgönguáætlun eða útfærslum á hugmyndum um veggjöld. Kannast hún við að það hafi átt sér stað á fundinum og að sú sem hér stendur hafi ekki getað farið með í þá vinnu vegna þess að hún þurfti að sinna öðrum störfum sem formaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd daginn eftir, en þar var skipulagður fundur.
Vegna orða hv. þingmanns um að farþegum í almenningssamgöngum hafi fækkað í kjölfar skorts á fjármagni langar mig að spyrja: Hefur meiri hlutinn einhverja sýn varðandi framtíð almenningssamgangna um Ísland? Ég greini það ekki í nefndarálitinu, ég sé bara að talað er um að almenningssamgöngur á landinu standi undir sér árið 2019.
Varðandi mikilvægi almenningssamgangna, hafa þau einhverja sýn varðandi það hvernig efla má almenningssamgöngur? Hvernig líst hv. þingmanni á tillögur minni hlutans um að efla almenningssamgöngur í nágrannasveitarfélögum þannig að þeir sem þurfa að fara á höfuðborgarsvæðið á hverjum degi vegna náms og starfs geti þá fengið niðurgreiðslu á almenningssamgöngum? Þá langar mig líka að spyrja aðeins út í álagningu veggjalda. — Ég geymi þá spurningu fram í seinna andsvar.
Mig langar að spyrja um sýn hv. þingmanns og meiri hlutans varðandi almenningssamgöngur.