149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[18:37]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu hef ég og aðrir í meiri hlutanum sýn á almenningssamgöngur. Unnið er að útfærslunni, eins og ég fór yfir, í samstarfi Samtaka sveitarfélaga og ríkisins. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé lykilatriði að það sé gert í samstarfi þessara aðila. En á sama hátt var ég mjög ósammála því á sínum tíma að hver landshluta ætti í rauninni að útfæra sitt kerfi án þess að horft væri á heildarmyndina. Ég held að það hafi verið einn af stóru göllunum í upphafi. Vissulega hafa unnist miklir sigrar og heilmiklar jákvæðar breytingar hafa orðið, en það er langt í land að ná þessari heild, að tengja saman samgöngur á landi, lofti og legi. Það er stóra verkefnið.

Í áætluninni sjálfri var ákveðin umfjöllun eins og hún var lögð fram, sem er hluti af minni sýn á málið, ég var bara ekki búin að fletta því upp áður en ég kom í ræðupúltið.

En ef við förum til baka til fundarins 4. desember sl. þá voru á þeim fundi umræður um hvernig unnið skyldi að því að ljúka verkefninu, umfjöllun um samgönguáætlun. Fóru fram umræður milli þeirra þingmanna sem þar voru staddir um hverjir væru tilbúnir og hefðu áhuga á að koma að því að útfæra tillögur og nefndarálit. Það sneri ekki sérstaklega að veggjöldum, það sneri að öllu því sem fyrir lá.