149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[18:46]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni andsvarið. Ég vil byrja á því að segja að ég hef aldrei tekið þátt í afgreiðslu máls, verið framsögumaður eða tekið þátt í að vinna nefndarálit, sem hefur verið jafn mikið og lengi í vinnslu eða umfjöllun nefndar. Það er bara staðreynd. Hins vegar er spurningin um hvort nauðsynlegt hafi verið að hafa þessa umfjöllun um veggjald svona ítarlega. Vissulega er það alltaf matsatriði og það er ákvörðun sem við tókum þegar skrif nefndarálitsins hófust, að kannski væri skynsamlegt að hafa þetta ítarlegt því að þrátt fyrir að fjallað væri um gjaldtöku í samgönguáætlun, eins og hún var lögð fram, hlaut hún í raun ekki mikla umræðu eða athygli umsagnaraðila. Að því leyti held ég að það sé mjög gagnlegt fyrir framvindu þeirra verkefna sem nú eru hjá stjórnsýslunni að þessi mikla umfjöllun hafi farið fram, það skilar verkinu áfram.

Nú er ég hér með tillöguna sem meiri hlutinn leggur fram, fellur undir markmið um hagkvæmar samgöngur og hljóðar svo:

„Unnið verði að útfærslu nýrra fjármögnunarleiða og nauðsynlegri frumvarpsgerð með það að markmiði að flýta framkvæmdum á áætluninni og skapa fjárhagslegt rými fyrir nýjar framkvæmdir.“

Þetta er sú viðbót sem lögð er fram við þá umfjöllun sem nú þegar er í samgönguáætlun um breytingu á fjármögnun. Ég held að ég sé búinn að svara þessu.