149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[19:10]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (U) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðu hans. Hann gat um hina langþráðu Sundabraut og gerði hana ítrekað að umtalsefni í efnismikilli ræðu. Nú er það svo að það sýnist ekki ofarlega á forgangslista borgaryfirvalda að ráðast í gerð Sundabrautar. Önnur málefni sýnast hafa fangað athygli þar á bæ. Fullyrt er að ýmsar lóðir í Vogunum séu komnar í hendur einkaaðila með sölu af hálfu borgarinnar sem fækki kostum í því efni og geri framkvæmdina að ýmsu leyti erfiðari og dýrari en ella.

Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann, sem jafnframt er nefndarmaður í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, hvernig hann sjái fyrir sér að unnt væri að ýta á eftir því brýna máli í ljósi þeirra hamlandi þátta sem ég hef getið um.