fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Það var örlítið minnst á það, mig rámar í umsögn frá gestum sem hljóðaði eitthvað á þann veg að verið væri að skoða hvernig þetta passaði við lög um opinber fjármál. Síðan þá höfum við ekki fengið neinar nákvæmar greiningar á því. Eitthvað var minnst á þetta í fjárlaganefnd, þ.e. að ef hið opinbera tæki ákvörðun um framkvæmdina þá væri þetta opinber framkvæmd sem þyrfti að lúta lögum um opinber fjármál og líka passa inn í fjármálastefnuna — það er mikilvægt að hafa hana þar inni, þar koma lánin fram og hlutföllin á lánunum — og fjármálaáætlunina. Nei, ekki hefur komið fram greining á því hvaða áhrif þetta hefur á fjármálaáætlunina og fjármálastefnuna, ef einhver. Upphæðirnar? Þetta er í 57 milljörðum, gerist á nokkrum árum, hefur einhver áhrif. Ég giska á að það hefði ekki mikil áhrif á prósentutölu eða prósentustig. En eins og ég segi: Skilaboðin voru þau að það væri verið að skoða það. Það er vissulega áhugavert að ekki sé komin niðurstaða í það nú þegar við erum í síðari umr.