149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta eru búnar að vera áhugaverðar umræður í kvöld og í dag. Við höfum rætt aðeins um lög um opinber fjármál síðustu mínúturnar. Í fjármálaáætlun til næstu fimm ára, sem við samþykktum sl. vor, er reiknað með 338 milljörðum í framkvæmdir og fjárfestingar á vegum ríkisins á fimm ára tímabili. Sú upphæð sem við vorum að tala um í veggjöld er um 15% af því. Í samhengi hlutanna er þetta svipuð tala og Isavia hefur dregið úr framkvæmdum í Keflavík næstu fjögur árin. Þetta er nákvæmlega sama talan. Þar var gert ráð fyrir 130–150 milljörðum, en það er búið að draga það niður í 86 milljarða næstu fjögur árin.

Mér finnst þetta áhugavert og ég er sammála þingmanninum. Ég spyr hann kannski frekar: Er hann sammála mér um að það hafi verið dregið allt of mikið úr fjárveitingum til samgöngumála undanfarin ár? Þurfum við ekki að gera miklu betur og er (Forseti hringir.) þetta leiðin til að leysa þau vandamál sem standa þar fyrir dyrum?