149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:29]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir yfirferð hans og sýn á þau verkefni sem liggja fyrir. Það var fróðlegt að heyra þingmanninn staðfesta að þeim verkefnum sem meiri hlutinn lítur svo á að séu þau brýnustu sé ekki raðað fremst í samgönguáætlun heldur látin bíða niðurstöðu umræðna um veggjöldin.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þetta. Við vöktum athygli á þessu í nefndaráliti minni hlutans, hvernig forgangsröðuninni hefur einhvern veginn verið snúið á hvolf og þau brýnustu verkefni sem rætt hefur verið um hafa verið tekin út og ætlað að framkvæma þau og fjármagna með öðru.

Þá langar mig líka að spyrja hv. þingmann út í þann viðsnúning sem hefur orðið á þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sem sögðu allir fyrir rúmu ári að þeir væru á móti veggjöldum í umræðuþætti hjá Ríkisútvarpinu. (Forseti hringir.) Hvað hefur gerst síðan þá? Nú var Sjálfstæðisflokkurinn með samgönguráðuneytið á þeim tíma og því vel kunnugur því ástandi sem var á vegum landsins.