149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:32]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Mátti skilja það þannig að það sem þingmaðurinn hafði sagt áður að væru brýnustu verkefnin séu það þá ekki lengur? Það eru ekki brýnustu verkefnin sem ætlunin er að fjármagna með veggjöldum.

Þá langar mig líka að spyrja hv. þingmann hvort það skipti einhverju máli í hans huga að vegfarendur hafi möguleika um aðra leið en þá sem lögð eru á veggjöld, eins og t.d. fyrir þá sem búa í námunda við hv. þingmann á Suðurnesjum, þ.e. að þeir eigi möguleika á annarri leið til höfuðborgarsvæðisins til að komast hjá veggjöldum.

Svo langar mig að spyrja hv. þingmann út í skosku leiðina. Ef ég man rétt kostar sú hugmynd 1,5 milljarða á ári, það sem verið er að ræða þar. Hvar ætlar þingmaðurinn að finna þá peninga?