fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég hjó eftir því hjá hv. þingmanni að hann talaði um að minnihlutaálitið væri ítarlegt. Þetta eru fjórar síður. Átta og hálf lína að lokum um innanlandsflugið og flugvallakerfi landsins. Mig langar að spyrja hv. þingmann hverjar hans hugmyndir eru varðandi innanlandsflugið. Við höfum rætt almenningssamgöngurnar. Það tekur 7 klukkustundir og 15 mínútur að taka strætó til Akureyrar, 12–14 klukkustundir að taka strætó til Egilsstaða frá Reykjavík. Ég hefði áhuga á að fá nánari sýn á þessi mál hjá hv. þingmanni þar sem það er mjög lítið um þetta í minnihlutaáliti umhverfis- og samgöngunefndar. Kannski gæti ég fengið ítarlegri sýn frá hv. þingmanni á nákvæmlega þessa þætti.