149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:55]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég legg ekki alltaf þá merkingu í orðið „ítarlegt“ að efninu sé dreift á sem flestar síður. Ég hef séð álit, bara nýlega, meirihlutaálit frá sömu samgöngunefnd, þar sem voru 3,5 blaðsíður um ekkert. Hvort hv. þingmaður kalli það ítarlegt eða ekki verður hann að svara.

Ég hef talað um að vegna þess að við höfum ákveðið að byggja hér upp mjög miðlæga þjónustu, sem hefur verið skynsamlegt, held ég, þegar það var hugsað í upphafi, þá verðum við líka að tryggja að allir landsmenn eigi aðgang að höfuðborginni. Þess vegna hef ég ekki verið andsnúinn því að skoða með einhverjum hætti stuðning við fólk til að komast sem hraðast til höfuðborgarinnar, hvort sem það er með flugi eða með strætóleiðum. Það búa ekki allir á Akureyri eða Egilsstöðum þar sem flugvellirnir eru. Það verður að hugsa hlutina miklu ítarlegra en það. Og svo þurfum við auðvitað ekki síst að skoða þetta alla leið og taka tillit til loftslagsmála og ýmissa hluta sem þarf að ræða.