149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:58]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Logi Einarssyni verður tíðrætt um skattahækkanir. Ég vil kalla þetta sem við erum að tala um markaðar tekjur með ábata fyrir þann sem borgar. Ég bendi á t.d. bílastæðagjöld sem leggjast jafnt á alla notendur. Ávinninginn er hægt að skoða samfélagslega eða af ökumannsins hálfu. Þetta eru ekki skattar heldur gjöld.

Ég ætla að leggja einfalda mynd af inntaki veggjalda fyrir hv. þingmann. Það er maður nokkur sem ekur 50 km leið 200 sinnum á ári vegna vinnu. Það eru 10.000 km. Veggjaldið er komið, 150–200 kr., margfaldað með 200 ferðum, það eru 30.000–40.000 kr. á ári.

Aksturinn, hinn raunverulegi akstur, kostar manninn 100 kr. á km, það gerir milljón. Þá sjáum við hverjar álögurnar eru. Og ábatinn? Styttri aksturstími, hálfs lítra sparnaður af bensíni, lengri líftíma bíls, aukið öryggi, minni útblástur. (Forseti hringir.) Bara bensínssparnaðurinn er um 12.000 kr. Hvar eru þá þessar voðalegu álögur, herra þingmaður?