149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:59]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla bara að ítreka það sem ég sagði áðan: Á meðan þú hefur enga valkosti, ekkert val um það hvort þú eigir einkabíl eða notar almenningssamgöngur, þarf að búa umhverfið þannig að það leggist ekki margfalt þyngra á þá sem eru með fáa aura í veskinu.

Af því að hv. þingmaður var svona hugvitssamur að láta sér detta í hug samanburð við bílastæðagjöld þá er það nú almennt þannig að ef maður leggur hérna í miðbænum og borgar fyrir það bílastæðagjald veit maður líka að það er til þess að halda þeim við en ekki að borga bílastæði á Vestfjörðum eða Austurlandi eða Suðurlandi. Þannig að þetta er bara algjörlega óskylt dæmi og ónothæft.

Ég hef almennt verið frekar jákvæður út í að maður borgi fyrir einstaka framkvæmdir, enda sé hægt að keyra aðra leið og þetta verði þá til þess að stytta leiðina. Í því getur falist töluverð umhverfisvernd. En dæmið sem hv. þingmaður kom með er algerlega út í hött og ég náði nú ekki að fylgja reikningsdæminu.