149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[21:01]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Við ræddum loftslagsmálin fyrr í dag og þá var hv. þingmaður ekki hér. Því miður missti hann af því öllu saman. En ég ætla að ræða aðeins um tekjutengd bensíngjöld. Væri það ekki ágætt? Eigum við að gera það? Eða tekjutengdan bifreiðaskatt?

Aðalmálið er þetta: Við erum að gera þetta í þessum tilgangi. Og af því að menn hafi rætt hér um hjáleiðir, bæði hv. þm. Helga Vala Helgadóttir og hv. þm. Logi Einarsson, þá eru hjáleiðir í þessum tilvikum: Keflavík – Selfoss: Suðurstrandarvegur; Selfoss – Reykjavík: Suðurstrandarvegur og Krýsuvíkurvegar. Hugsanlega eitt tiltölulega ódýrt tollahlið þegar menn aka inn í Hafnarfjörð. Reykjavík – Borgarnes? Jú, Þingvellir, Kjósarskarð, Hvalfjörður.

Þetta er því ekki stóra málið. En ég vil benda á að leiðirnar eru með í þessari mynd. Og auðvitað er það þannig og reynslan sýnir að menn aka ekki þessar löngu hjáleiðir heldur fara þar sem kemur þeim best.