149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[21:03]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Af máli hv. þm. Loga Einarssonar mátti skilja að í tillögum meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fælust breytingar á forgangsröðun frá áherslum Vegagerðarinnar. Ég óska eftir að hv. þingmaður útskýri í hverju þær felast og hvar sú tillaga liggur fyrir.

Auk þess langar mig að velta upp spurningu: Í hverju felst samráð? Væri meira samráð falið í því að afgreiða samgönguáætlun án þess að ræða um gjaldtöku í samgöngum og bíða eftir að frumvarp verði lagt fyrir þingið og ræða það einungis þá?