fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta. Ég held að það sé einmitt hlutur sem við þurfum að fara að ræða. Almennt er ég á því að við núverandi ástand þar sem við höfum ekki byggt upp nauðsynlegt grunnkerfi — við erum að leggja til minni peninga sem hlutfall af vergum þjóðartekjum en nágrannaþjóðir okkar. Samt eru þær fyrst og fremst að viðhalda sínu kerfi á meðan við erum að byggja það upp.
Við höfum ekki almenningssamgöngukerfi sem er í líkingu við það sem borgir annars staðar hafa. Við erum í þeirri stöðu að fólk þarf að eiga bíl og þá er eðlilegt að það noti samneysluna, noti almenna skattkerfið, til að greiða þá uppbyggingu. Þegar við erum komin á þann stað í lífinu að fólk geti átt val um að eiga bíl eða tekið lest eða strætó, þá skulum við fara að leggja miklu harðari álögur á bíleigendur af því að það er þá orðið óþarfi. Þar hafa t.d. Svíar verið að horfa til þeirrar leiðar að leggja á einfalt kílómetragjald.