fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Fyrirhyggja og vandvirkni þegar kemur að gjaldtöku, skattheimtu og opinberum fjármálum — ég get svo sannarlega tekið undir þau orð, þau eru mjög mikilvæg.
Ég hef skilning á því að það gæti ákveðinnar hræðslu, ef það er rétta orðið, hjá þingmönnum og landsmönnum þegar við ræðum nýjar hugmyndir í gjaldtöku eins og veggjöldin eru svo sannarlega. Við vitum að breytingar eru alltaf erfiðar og við þurfum að taka okkur tíma í að ræða okkur í gegnum þær. Ég hef skilning á því að mörgum finnist eins og sú umræða hefði þurft að taka enn meiri tíma. Þá vil ég samt minna á að þetta hefur dúkkað upp reglulega í umræðunni og ég held að í öllum flokkum finnist fólk sem hefur tekið undir það að þetta geti verið góð hugmynd, sé spurning um útfærslu, tímasetningu og annað þess háttar.
Ég lít svo á að hér sé þingið að senda mjög skýr skilaboð til framkvæmdarvaldsins um að þetta sé sú leið sem við sjáum fyrir okkur til að flýta þeim mikilvægu framkvæmdum sem flestir eru, held ég, sammála um að þurfi að fara í. Hv. þingmaður spyr hvernig mér finnist þetta ríma við aðrar hugmyndir um gjaldtöku í ljósi orkuskiptanna og mér finnst þetta einmitt ríma vel við þær. Ég og hv. þingmaður sitjum bæði í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem við höfum einmitt fengið kynningu á því. Þrátt fyrir mikilvægi orkuskiptanna og mikilvægi þess að við séum með ákveðnar ívilnanir, eins og við erum með, til þess að hvetja fólk til að skipta yfir í umhverfisvænni bíla, þá vitum við öll, og líka þeir sem fjárfesta í slíkum bílum, að á einhverjum tímapunkti þurfum við að afla ríkinu fjár til að standa undir samgöngumannvirkjum. Þetta er ein hugmynd að því. Þetta er líka hugmynd að því að flýta þessum framkvæmdum sem ég tel mikilvægt. Mér þykir þetta ríma vel saman. En ég verð að koma að borgarlínunni í öðru andsvari.