149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[22:03]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hygg að ég og hv. þingmaður séum sammála um ýmislegt, enda hygg ég að við höfum verið sammála, þegar við störfuðum saman í ríkisstjórn fyrir stuttu, um að veggjöld gætu verið mjög skynsamleg hugmynd. Ég get líka verið sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að losa eignarhlut ríkisins, til að mynda í bönkum sem starfa á samkeppnismarkaði.

En ég ítreka það sem ég sagði áðan: Umræðan hefur verið töluverð. Hvort hún hefði átt að vera meiri eða vara í lengri tíma? Ég veit það ekki. Við stöndum frammi fyrir gríðarstóru verkefni núna sem er mikilvægt að leysa. Þetta er augljóslega ein leið til að leysa það verkefni. Mér hugnast hún ágætlega. Við munum hafa lengri tíma til að ræða þetta — áttið ykkur á því að við erum ekki, virðulegur forseti, að útfæra allt hvað veggjöld varðar hér í þessu ágæta nefndaráliti heldur munum við fá frumvarp frá hæstv. ráðherra síðar þar sem við getum haldið áfram að ræða þetta.

En borgarlínan — nú er ég að renna út á tíma: Ég hef alltaf í ræðum mínum lagt áherslu á mikilvægi hennar. Ég er mjög ánægð með að hún fær aukið vægi hér í nefndaráliti (Forseti hringir.) meiri hlutans. Mikilvægasti hluturinn er auðvitað, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, virðulegi forseti, að þetta verði unnið í samstarfi við sveitarfélögin, sem er nákvæmlega það sem segir í stjórnarsáttmálanum. Þar þarf ríkið að sjálfsögðu að taka sinn hluta af kostnaðinum, það er alveg ljóst.