fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ræðu. Það var margt mjög áhugavert í henni. Mig langar kannski að einblína á tvö til þrjú atriði. Þingmaðurinn talaði nokkuð um skipulagsmál og ræddi um þann vanda sem getur skapast þegar verið er að vinna verkefni sem ná yfir mörg sveitarfélög. Þá kemur kannski að því sem mig langar að ræða við hana, þ.e. að því sem snýr að skipulagi á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til tveggja þátta — annars vegar með tilliti til umferðarflæðis, þ.e. að sveitarfélögin þurfi í svæðisskipulagi að koma sér saman um skipulag sem stuðlar að umferðarflæði, þar með talinni borgarlínu, en hins vegar að skipulag innan sveitarfélaganna og innan hverfa mæti þeirri kröfu að fólk geti gengið og hjólað í þjónustu í nærumhverfi sínu, að það geti raunverulega tileinkað sér lífsstíl sem er nær því að vera umhverfisvænn en einkabílisminn.
Mig langar síðan að biðja þingmanninn, ef hún hefur tíma, að ræða aðeins nánar þetta með lögbindingu almenningssamgangna, þ.e. með hvaða hætti þingmaðurinn sjái það fyrir sér. Þetta yrði væntanlega að einhverju leyti hlutverk sveitarfélaganna en eins og þingmaðurinn kom inn á í ræðu sinni telur hún a.m.k. að þetta yrði líka hlutverk ríkisins. Mig langaði aðeins að heyra frekari vangaveltur um með hvaða hætti þetta kynni að verða gert því mér þykir þetta áhugaverð hugmynd.