149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[22:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að svara því sem hv. þingmaður spurði mig um áðan varðandi lög utan um almenningssamgöngur. Ég benti á þetta því að við fjölluðum hér 2016–2017 um lög um farþega og farmflutninga, ég held að þau lög hafi heitið það. Þá ræddum við þetta sérstaklega, öryggisatriði allra sem stunda slíka flutninga. Sveitarfélögin eiga fyrst og fremst að sinna þjónustu sem þeim er falin samkvæmt lögum, þó að þau megi að sjálfsögðu veita annars konar þjónustu sem er til hagsbóta fyrir íbúana. En það er enginn sem segir hver eigi að sinna almenningssamgöngum og það er spurning hvort ekki sé þörf á því að til séu lög sem lögbinda hreinlega það hlutverk að sjá um almenningssamgöngur og kveða á um hver eigi að gera það. Ef það eru sveitarfélögin er auðvitað eðlilegt að ríkið greiði hluta af því.

Varðandi gjaldheimtuna er ég kannski meira að vísa til þess sem hv. þm. Þorsteinn Víglundsson spurði mig út í hér áðan, að við sjáum fram á breytingar í því hvernig við þurfum að fjármagna gatnakerfið okkar. Ég velti því fyrir mér hvort það sé raunhæft að tala um að við munum rukka tímabundið fyrir að aka viðkomandi vegi eða viðkomandi göng eða hvort viðhaldskostnaður og annar kostnaður við gatnakerfið kalli á að framlengja þurfi það með einhverjum hætti, þó að gjaldið kunni að vera lægra. En ég sæi alltaf fyrir mér að við værum að nota sama kerfið.

En þetta er einmitt fegurðin við það að við erum ekki búin að klára þessa umræðu. Við munum hafa tækifæri til að ræða þetta mál áfram og þetta er auðvitað eitt af því sem við getum hugað að í þeim efnum, t.d. útfærslan á því hvernig við ætlum að standa að gjaldtöku til lengri tíma litið.