fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Líklegast liggur meiningarmunurinn hjá okkur í því að ég tel óásættanlegt að á sama tíma og hér verði þessi gerbreyting í fjármögnun á stofnframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu þá verði farið eftir orðalaginu „unnið verði að“ fjármögnun á borgarlínu. Ég tel að þetta þurfa fara saman, menn vinni að hlutunum sameiginlega og klári þau sameiginlega. Þá liggur það fyrir.
Mig langar í seinni umferð, hef styttri tíma, til að beina athyglinni að því sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni, fagnaði breytingartillögu meiri hlutans varðandi Arnarnesveg og kom inn á að það væri gleðilegt að þessi vegur væri inni í hugmyndum meiri hlutans. Ég bendi hins vegar á að hann er þar ef svigrúm næst með veggjöldum. Nú er breytingartillaga minni hlutans á annan veg. Hún er einfaldlega sú að við göngum í að klára þennan veg vegna þess að það er ótækt að sú staða sé uppi að jafn fjölfarinn (Forseti hringir.) vegur á jafn fjölförnu svæði sem hefur slík áhrif, gerir slíkar kröfur á slökkvilið og veldur því að fleiri til þess bærir aðilar eru farnir að gera alvarlegar athugasemdir, það kemur ákall (Forseti hringir.) frá bæjarstjóra, sé látinn hanga á því að hér klárist vinna við sérstök (Forseti hringir.) veggjöld og menn hliðri til framkvæmdum hér á höfuðborgarsvæðinu. Í ljósi (Forseti hringir.) öryggismála getur hv. þingmaður ekki verið sammála mér í því að þessa framkvæmd(Forseti hringir.) þarf að fara í?
(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmenn að virða tímamörk.)