fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður er örugglega að vísa í það sem ég las upp úr nefndarálitinu, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn telur mikil tækifæri felast í hugmyndum um veggjöld en með þeim megi auka og flýta samgönguframkvæmdum til hagsbóta fyrir samfélagið allt. Nánari útfærslur byggjast á því að viðbótarfjármögnun með veggjöldum nái fram að ganga og samkomulag náist fljótlega milli ríkis og sveitarfélaga um framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu.“
Þegar við tölum um umferð á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar höfum við annaðhvort horft til ársins 2030 eða ársins 2040. Árið 2040 er áætlað að 70.000 fleiri búi á höfuðborgarsvæðinu en nú. Það er Hafnarfjörður, Garðabær og næstum því Mosfellsbær líka. Þegar fólki fjölgar svona mikið verður augljóslega meira álag á stofnvegum okkar. Allir umferðarútreikningar sýna að ef við förum ekki í borgarlínu verðum við endalaust í biðröðum og í mengunarskýjum og öllu því en með því að fara í borgarlínu eykst umferðin þó ekki nema um 24%, eitthvað svoleiðis.
Að sjálfsögðu hagnast þeir sem keyra um höfuðborgarsvæðið á því að farið sé í mikilvæga innviðauppbyggingu, bæði borgarlínu og stofnvegaframkvæmdir. Það er ekki hægt að líta bara á aðra hvora leiðina, við verðum að fara í þær báðar. Þess vegna held ég að þetta sé mikilvæg samfélagsleg bót. Hvort sem við reiknum það út í krónum og aurum í spöruðu bensíni, í minni mengun, bættri lýðheilsu, auknu umferðaröryggi eða betra borgarsamfélagi held ég að ágóðinn sé alltaf til staðar. Þess vegna hef ég fulla trú á þeirri leið og því að hún færi okkur mikilvægar framkvæmdir fyrr en ella.