fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég er að spá hvort það sé orðið of áliðið kvölds fyrir svona pælingar en ég skil ekki alveg röksemdafærslu hv. þingmanns, ég verð að viðurkenna það. Ég held að mjög mikilvægt sé að taka þá umræðu við almenning að þegar við ræðum borgarlínu og bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu erum við ekki að ræða hlutina eins og þeir eru í dag, því að við í þessum sal eigum auðvitað alltaf að vera að horfa til framtíðar og það þurfum við að gera. Við þurfum að tryggja að árið 2040, þrátt fyrir að 70.000 fleiri íbúar verði á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi ferðamanna hafi örugglega tvöfaldast frá því sem er í dag, geti fólk samt sem áður komist ferða sinna tiltölulega greiðlega með nokkuð öruggum hætti án þess að við mengum okkur í drasl, ef svo má að orði komast. Með því að fara þær leiðir sem hér eru lagðar til náum við að fara í þær framkvæmdir sem eru algjörlega nauðsynlegar til að svo verði.