fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans yfirferð yfir þetta margslungna mál. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður kom aðeins inn á stefnu síns flokks, Vinstri grænna, og vísaði í landsfundarsamþykkt um að flokkurinn væri á móti álagningu veggjalda. Maður veltir fyrir sér hvernig þetta rími við það sem nú er verið að leggja til, þ.e. að lögð verði á veggjöld ýmiss konar, bæði vegna orkuskipta og vegna framkvæmda á einstaka vegum og við jarðgöng.
Mig langar þess vegna að spyrja hv. þingmann út í þá hugmyndafræði sem gjarnan hefur verið kennd við frjálshyggju, að best sé að þeir borgi sem noti, á meðan a.m.k. við jafnaðarmenn höfum frekar aðhyllst þá stefnu að þeir borgi sem geti.
Hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson sagðist líka alveg vera til í að fara í almennar skattahækkanir. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í hvernig honum lítist á þær tillögur sem eru í áliti minni hlutans um að fara í nauðsynlegar framkvæmdir, þær brýnustu framkvæmdir sem Vegagerðin leggur til að verði raðað fremst í forgangi vegna öryggissjónarmiða, og hvernig hv. þingmanni lítist á þær fjármögnunartillögur sem minni hlutinn leggur til, þ.e. að hætta við að lækka veiðigjöld, sem kostar ríkissjóð 3 milljarða á ári, hætta við lækkun bankaskatts, sem kostar t.d. 7 milljarða á ári, og leggja á komu- og brottfarargjöld á erlenda ferðamenn.