149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[22:47]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir andsvarið og spurningarnar. Ég minnist þess ekki að hafa nefnt landsfundarsamþykktir VG í ræðu minni en eins og einhver annar þingmaður sagði hér fyrr í kvöld: Það er áliðið og ég man það ekki. Ég held samt að ég muni það. En það kann að vera að mig misminni herfilega.

Þessi mótsögn sem er hjá þeim stjórnmálasamtökum sem ég stend fyrir er sú að annars vegar viljum við halda áfram að fjármagna samgöngukerfið með svipuðum hætti og hefur verið gert en á hinn bóginn erum við sá flokkur sem vill ganga einna lengst í því að hverfa frá olíu- og bensíngjöldum, þ.e. með því að fólk hætti að kaupa bensín og olíu. Þarna er vandinn. Þess vegna er hugmyndin um veggjöld í mínum huga fyrst og fremst stigsmunur en ekki eðlismunur. Það er áfram verið að halda sig við þessar hugmyndir, þeir sem nota mest bensín og olíu varpast yfir í þá sem nota mest vegina og þeir borgi. Það má að vissu leyti segja að mengunarbótareglan sé þarna, við getum ekki lengur treyst á að leggja mengunargjöld á gjaldstofna sem eru hverfandi og sem við viljum að hverfi. Það þarf einhvern veginn að bregðast við því.

Varðandi almennu skattahækkanirnar og tillögur minni hlutans er einna helst að segja að mér hefur sýnst að það sé búið að nota þessa peninga alloft, (Forseti hringir.) í þeim tillögum sem a.m.k. Samfylkingar … (Forseti hringir.) (HVH: … voru ekki samþykktar.) Menn hafa stungið upp á að þeir peningar sem kæmu með því að hækka veiðigjöldin yrðu notaðir til að hækka barnabætur, (Forseti hringir.) nú á að nota þá í að fjármagna vegi o.s.frv. Það er ekki hægt að nota sama peninginn tvisvar.