fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er kannski rétt að árétta að tillögur Samfylkingarinnar, þegar kom að afgreiðslu fjárlaga, voru ekki samþykktar. Tillögur til að koma í veg fyrir að það væri sérstaklega verið að færa útgerðaraðilum 3 milljarða voru ekki samþykktar og þess vegna voru ekki heldur samþykktar tillögur Samfylkingarinnar um hvernig ætti að nýta þá fjármuni. Bara svo því sé haldið til haga þá felldi ríkisstjórnin tillögur Samfylkingarinnar.
En mig langar aðeins að halda áfram með þessa spurningu. Hv. þingmaður talar um að í staðinn fyrir bensín- og olíugjöld komi núna veggjöld. Skilur hv. þingmaður tillögur stjórnarþingmanna og meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar þannig að maður borgi annaðhvort olíu- og bensíngjöld eða veggjöld og vegaskatt? (Forseti hringir.) Það er ekki það sem má lesa úr nefndarálitinu.