149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[22:51]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Nei, það er ekki þannig. Til þess að ýta undir það að fólk velji umhverfisvænni farartæki erum við að tala um annars vegar að á fallanda fæti haldi menn áfram að borga bensín- og olíugjöldin (HVH: Og borga bæði þá?) og borgi þá bæði meðan það er. Það eigi þá að vera hvatinn til að fá fólk til að skipta um orkugjafa eða halla sér meira að almenningssamgöngum.

Það er mikilvægt líka að taka fram að nú er hv. þingmaður að ræða um tillögur Samfylkingarinnar í skattamálum sem voru lagðar fram fyrir jól. Þær tillögur voru, eins og þingmaðurinn kom réttilega kom að, felldar þannig að þeir peningar sem hv. þingmaður er að tala um að við eigum að nota í vegakerfið eru ekki til reiðu.