fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður. Það er ekki einu sinni hægt að nota peninginn einu sinni ef hann er ekki innheimtur.
Veggjöld eru ósanngjörn skattlagning, kom fram í máli hv. þingmanns, og þeir borgi sem nota. Í umsögn Félags íslenskra bifreiðaeigenda var þetta einmitt gagnrýnt. Nei. Veggjöld eru einmitt ekki þau sem þeir borga sem nota á sama hátt og þau veggjöld sem eru innheimt við pumpuna, eins og hv. þingmaður gerði ákveðna samlíkingu við, líka. Því að tvö hús hlið við hlið, t.d. í Grindavík, þar sem annar íbúanna keyrir oft í bæinn, einu sinni á dag, á meðan hinn keyrir einu sinni í viku — og þeir skiptast oft á afsláttarkjörum. Það veldur því að það er mismunandi gjald við pumpuna fyrir þá sem borga veggjöld því að annar sem keyrir oft borgar miklu minni veggjöld fyrir að fá afsláttarkort meðan hinn gerir það ekki, eða hefur ekki efni á því, af því að hann hefur ekki efni á að punga út 70 þúsundum fyrir árskort, 100 ferða kortum eða einhverju því um líku og borgar mun hærra. Einmitt við dæluna.
Munurinn núna á eldsneytisgjöldum, eins og er, er að það er enginn að fá neinn sérstakan afslátt af því sem verið er að dæla úr eldsneytispumpunni. Meðan það er mjög misskipt hvernig veggjöld eru greidd miðað við afsláttarkjör og ýmislegt annað.
Mér þætti því áhugavert að heyra álit hv. þingmanns á þessum samanburði aftur því að ég fékk hana ekki alveg til að passa saman, þessa samlíkingu við það að eldsneytisgjöld væru líka veggjöld. Ég skil það, en eldsneytisgjöld eru ekki á sama hátt borga-sem-nota og veggjöld eru, út af afsláttarkjörum.