fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Hv. þm. Þorsteinn Víglundsson spurði hvort kolefnisskattarnir væru ekki skynsamlegri leið. Ef við horfðum á punktstöðuna í dag og tryðum því að kolefnisgjöld yrðu áfram umtalsvert andlag skattheimtu kann vel að vera að við ættum að skoða það eitthvað frekar, en við erum ekki að fara þangað. Við erum að fara frá kolefnisorkukerfinu. (ÞorstV: Á talsvert löngum tíma.) Ekki svo löngum tíma, hv. þingmaður. Ég hef séð spár þar sem talað er um að á næstu fimm til tíu árum geti tekjur ríkisins af bensíni og olíu lækkað um allt að helming. Ég veit að hv. þingmaður vonar alveg eins og ég að tekjur ríkisins af þessum gjöldum verði horfin fyrir árið 2040. Þá verðum við að vera búin að hugsa næstu skref. Ég tel að við séum við að byrja á því.