149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[23:07]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Hér ræðum við samgönguáætlun við síðari umr. Hún hefur fengið mikla og góða umfjöllun í þinginu. Mælendaskrá dagsins sýnir að þetta umfjöllunarefni er okkur nánast öllum mjög hugleikið, því greiðar og góðar samgöngur eru jú grunnur öflugs framsækins nútímasamfélags. Hér birtist stefnumótun stjórnvalda og Alþingis í samgöngumálum nú í fyrsta skipti til fimm og 15 ára. Áður hafa verið lagðar fram fyrir áætlanir til fjögurra og 12 ára en hér er um tímamót að ræða þar sem í fyrsta sinn er lögð fram samgönguáætlun til 15 ára til samræmis við lög um samþættingu og samræmingu áætlana. Framsetningin er einfaldari og skýrari og markmiðum fylgja hugmyndir að aðgerðum.

Markmið samgönguráðs við undirbúning áætlunar eru skýr og skilgreind með verkefnum. Þar má nefna markmið um greiðar samgöngur og þar er horft til samgöngukerfisins sem heildar, til hjólreiða, flugleiðsögustefnu, almenningssamgangna, upplýsingagjafar til ferðamanna og fleira. Sett eru markmið um öryggi í samgöngum og raunar eru öryggismarkmið yfir og allt um kring því takist okkur að fækka slysum er miklu náð. Einstaklingar og samfélag hafa tapað of miklu þar.

Markmiði um hagkvæmar samgöngur er einnig fylgt eftir með verkefnum. Markmið um sjálfbærar samgöngur er sjálfsagt að setja fram í dag. Það rímar við aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum. Markmið um jákvæða byggðaþróun eru okkur öllum mikilvæg svo áform um öflugt samfélag um allt land náðist. Dæmi um verkefni til að ná því markmiði er skilgreining vinnusóknar- og skólasvæða og niðurgreiðsla flugfargjalda.

Fimm ára áætlunin er framkvæmdaáætlun sem nú er lögð fram fjármögnuð og í fullu samræmi við opinber fjármál. Það er í sjálfu sér stór og mikilvægur áfangi sem sýnir ábyrga fjármálastjórnun og framtíðarsýn. Þetta verklag er mikilvægt svo hægt sé að horfa til framtíðar og leggja fram plögg sem hald er í. Hér er ekki um óskalista ræða heldur raunhæfa fjármagnaða áætlun. Það er mikilvægur áfangi.

Hæstv. forseti. Samgöngur eru grunnstoð efnahagskerfisins. Góðar samgöngur leggja grunn að samkeppnishæfni þjóðarinnar og lífsgæða í landinu. Eins og fram kemur í greinargerð tillögunnar til 15 ára eru góðar samgöngur og fjarskipta- og upplýsingatækni forsendur þess að hér búi sjálfstæð nútímaþjóð. Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að þróun byggðar í landinu og þróun samgöngukerfisins haldast í hendur og hafa áhrif hvor á aðra. Samgöngukerfið er lífæð þjóðarinnar og verður seint ofmetið því samgöngur snúast ekki eingöngu um flutning fólks og farms á landi, sjó og í lofti heldur hefur samgöngum líka alltaf fylgt flutningur upplýsinga og hugmynda. Mikil bylting hefur átt sér stað á því sviði og mun upplýsingatæknin ráða miklu um þróun samgangna í framtíðinni.

Hæstv. forseti. Aðdragandi þess að samgönguáætlun er lögð fram er langur og felst í samráðsferli og samtali svo að hægt sé að forgangsraða og vinna faglega að framlagningu hennar. Samgönguáætlun tekur til fjáröflunar og útgjalda allra greina samgangna, þ.e. flugmála, vegamála, siglingamála, þar með talið almenningssamgangna, hafnamála, sjóvarna, öryggismála og umhverfismála samgöngugreina. Sviðið er vítt og snertir í raun alla þætti þjóðfélagsins og þar með alla íbúa landsins. Því er samtal og samráð um þessi mál mikilvægt.

Sú sem hér stendur hefur fengið að veita samgönguráðið forystu og starfa með því. Í skipunarbréfi ráðsins frá ráðherra stendur orðrétt, með leyfi forseta:

,,Mikilvægt er að stuðla að samþættingu samgöngukerfisins sem heildar með það að markmiði að það þjóni íbúum landsins, ferðamönnum og atvinnulífi með skilvirkum hætti. Áfram skal leita fjölbreyttra leiða til að styrkja núverandi samgöngukerfi og þróa með hliðsjón af þörfum almennings og atvinnulífs og því margháttaða þjónustu- og öryggishlutverki sem samgöngukerfið gegnir.“

Þung áhersla er á öryggi og byggðasjónarmið, þ.e. að auka staðbundin búsetugæði og styrkja atvinnuuppbyggingu. Samgönguráð sem hefur það hlutverk að leggja grunn að samgönguáætlun átti ellefu formlega fundi og fundaði með rúmlega 300 aðilum. Auk þessara formlegu funda með landshlutasamtökum sveitarfélaga, sveitarstjórnarfulltrúum, Samtökum atvinnulífsins, fulltrúum frjálsra félagasamtaka og ferðaþjónustunni var haft víðtækt samráð við aðra aðila sem koma að opinberri áætlanagerð. Horfa þarf til fjarskiptaáætlunar, byggðaáætlunar og áætlunar um landsskipulag, ferðamálastefnu, lýðheilsustefnu, aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum og fleira.

Samráðsferlinu lauk með lögbundnu samgönguþingi sl. sumar. Niðurstöður samráðsfunda eru þessar helstar: Alls staðar lögðu menn mikla áherslu á öryggi. Kallað er eftir auknu sýnilegu eftirliti og lækkun hámarkshraða þar sem þarf. Það að lækka hámarkshraða getur verið öflug leið til að fækka slysum sem eru allt of mörg og taka mikinn toll. Við þessu hefur þegar verið brugðist eins og fram hefur komið í fréttum. Menn vilja fækka einbreiðum brúm og setja bundið slitlag á héraðs- og tengivegi en það er athyglisverð staðreynd að innan við helmingur af vegakerfinu er með bundið slitlag. Galið en satt, því miður.

Það má lesa úr niðurstöðum að menn vilja forgangsraða nýframkvæmdum þannig að áhersla verði lögð á þau svæði sem setið hafa eftir. Ljóst er að flestir vilja halda jarðgangagerð skipulega áfram. Ánægja er með áform um bættar almenningssamgöngur og áherslu á styrkingu innanlandsflugs sem hluta af því. Kallað var eftir að efla þyrfti Hafnabótasjóð og styrkja flutningsleiðir. Ferðaþjónustu vilja menn styrkja með föstu millilandaflugi á fleiri staði en nú er og bent var á að mikilvægt væri að varðveita upplifun ferðamanna á hálendinu með t.d. óbrúuðum ám svo eitthvað sé nefnt. Eitthvað þarf að fá að vera eins og það er, um leið og aðkallandi er að bæta samgöngur almennt og alls staðar.

Þá er ekki annað að heyra á íbúum landsins en að þeir séu tilbúnir til að skoða fjölbreyttar fjármögnunarleiðir og fara samvinnuleið í því þar sem það á við. Ekki hefur farið fram hjá þeim sem fylgst hafa með umræðunni hér að mönnum verður tíðrætt um fjármögnunarleiðir en hér ræðum við samgönguáætlun sem er fjármögnuð og með skýr markmið þar sem öryggissjónarmið er í forgrunni. Í meðförum nefndarinnar hafa einungis verið gerðar lítils háttar breytingar á verkefnum. Þær breytingar stafa af verkefnastöðu hjá Vegagerðinni og eðlilegri tilfærslu verkefna vegna framvindu þeirra. Meðfram þessu höfum við rætt um möguleika á breyttum fjármögnunarleiðum. Við verðum hreinlega að hugsa út fyrir boxið svo mögulegt verði að flýta framkvæmdum og ná því markmiði fyrr að byggja upp grunnnet samgangna.

Hæstv. forseti. Samgönguáætlun tekur mið af og er hluti af heildstæðri samþættri stefnu í samgöngumálum, fjarskiptamálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga. Hún er í samræmi við samþykktar áætlanir á vegum Alþingis og ríkisstjórnar. Samgönguáætlun sem nú liggur fyrir þinginu sýnir breytt og bætt vinnubrögð í áætlanagerð. Í fyrsta skipti er hún í samræmi við væntanlegar fjárveitingar sem samþykktar voru af Alþingi með fjármálaáætlun 2019–2023. Samgönguáætlun er raunhæft plagg um framkvæmdir sem hægt er að ráðast í á næstu árum.

Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að ríkisstjórnin vilji hraða uppbyggingu í vegamálum og öðrum samgönguinnviðum, bæði með nýframkvæmdum og viðhaldi. Strax var farið í þessa vinnu og hefur viðhald á vegakerfinu aldrei verið meira en á liðnu ári. Brugðist var við brýnum viðhaldsverkefnum og uppsöfnuðum vanda undanfarinna ára. Á liðnu ári voru 12 milljarðar veittir til brýnna úrbóta til að tryggja umferðaröryggi sem best. Áætlunin miðar við að auka framlög til viðhalds í 10 milljarða kr. á ári frá árinu 2019. Í heildina er gert ráð fyrir að 160 milljörðum verði varið í viðhald og framkvæmdir í vegakerfinu næstu fimm árin.

Hæstv. forseti. Við komumst langt með þessa upphæð en hún hrekkur þó ekki til að mæta uppsöfnuðum vanda eins hratt og við flest vildum. Því hefur ráðherra samgöngumála bent á þann möguleika að hægt er að tvöfalda þessa upphæð með samvinnuleið í fjármögnun á ákveðnum mannvirkjum. Þann kost þurfum við að skoða vel og nýta þar sem við á svo hægt sé að flýta aðkallandi og mikilvægum verkefnum. Sú mikla umræða sem átt hefur sér stað undanfarið um fjölbreyttar fjármögnunarleiðir hjálpar okkur fram veginn og eykur líkur á því að við tölum okkur til niðurstöðu. Samtalið leiðir okkur áfram.

Eitt af markmiðum samgönguáætlunar felst í áætlun um jákvæða byggðaþróun og að auka búsetugæði, þ.e. að samgöngur séu eins greiðar, áreiðanlegar og öruggar og kostur er með sérstakri áherslu á landshluta og byggðakjarna innan þeirra. Ekki ætla ég í þessari ræðu að tiltaka sérstök verkefni en í þessu sambandi má nefna verkefni eins og Langanesströndina sem vissulega er mikilvæg í byggðalegu sjónarmiði og í raun forsenda áframhaldandi uppbyggingar í því samfélagi sem hún tilheyrir. Öll samfélög eru mikilvægir hlekkir í byggðakeðju landsins. Líta þarf á samgöngukerfið sem heild með það að markmiði að það þjóni íbúum og atvinnulífi með skilvirkum hætti. Allar aðgerðir lúta að því að hámarka öryggi, vernda mannslíf og standa jafnfætis þeim þjóðum sem fremst standa í öryggismálum. Við lok 15 ára áætlunarinnar er markmiðið að hafa byggt upp grunnnet samgöngukerfisins. Það er stórt markmið sem þarf að stefna markvisst að með öryggissjónarmið að leiðarljósi við forgangsröðun. Þessu má flýta með breyttri fjármögnun. Það gerist með samtali og samvinnu.

Hæstv. forseti. Aðkallandi er að tryggja öryggi allra landsmanna og gesta okkar um allt land. Markmið um öruggar samgöngur er mikilvægur þáttur og lögð á það áhersla að öryggi sé haft til hliðsjónar við allar ákvarðanir, áherslur og aðgerðir í samgönguáætlunum óháð ferðamáta. En markmið þeirra er að vernda mannslíf og að Ísland standi jafnfætis þeim ríkjum sem fremst standa í öryggismálum.

Hæstv. forseti. Verkefnin sem blasa við eru svo fjölbreytt að haf og himinn er á milli þeirra þegar horft er til umfangs. Þau snúa ekki eingöngu að vegakerfi landsins heldur flugvöllum og höfnum líka. Gert er ráð fyrir auknu fjármagni í viðhald flugvalla en gera þarf betur ef duga skal. Stefnt er að breyttri rekstrartilhögun flugvallakerfis landsins svo tryggja megi betur rekstur og viðhald þess. Ég tek undir tillögu meiri hlutans og áherslur er lúta að fluginu. Mikilvægt er að hefja vinnu við aukið flugöryggi með eflingu varaflugvallanna og ná fram áhrifum af breyttu fyrirkomulagi eins fljótt og auðið er. Flugstefna landsins mun birtast innan tíðar og vonandi eigi síðar en á næsta ári þegar flug á Íslandi á 100 ára afmæli. Flug er mikilvægur hluti samgöngukerfisins og þegar það verður raunhæfur kostur með tilkomu niðurgreiðslu í anda skosku leiðarinnar bætum við vissulega lífsgæði og búsetuskilyrði.

Svo vil ég nefna líka einn þátt sem meiri hlutinn bendir einnig á í sínu nefndaráliti. Það er mikilvægi þess að tryggja að hér sé aðstoð við flugnám og æfingaflugvöllur sé til staðar. Það hlýtur að vera grunnur að því að hér haldi áfram að vera til öflug stétt fólks sem vinnur á því sviði.

Hafnir landsins þurfa einnig viðhald en margar þeirra eru komnar á þann stað að sinna þarf miklu viðhaldi. Mörg þilin í höfnunum eru komin algjörlega á síðasta snúning og það þarf að gera stórátak. Þess vegna hefur framlag til Hafnabótasjóðs aldrei verið meira og samgönguáætlun miðar að því að á fyrsta tímabili verði unnið að siglingastefnu fyrir Ísland sem miðar að auknum hagvexti og atvinnusköpun í siglingum og tengdum greinum. Það hlýtur að vera eyþjóð mikilvægt.

Samgöngur snerta daglegt líf okkar allra og ákvarðanir stjórnvalda skipta okkur miklu máli. Þó að nú sé verið að setja meiri peninga í samgöngur en nokkurn tíma áður þá kemur fram hjá fulltrúum í nefndinni að öllum gestum sem komu fyrir nefndina bar saman um að það væri ekki nóg. Ég heyri heldur ekki annað á því fólki sem ég ræði við. Við erum öll notendur að þessu kerfi og berum því hag þess fyrir brjósti og þetta skiptir líf okkar miklu máli. Ef við eigum að komast á ásættanlegan stað varðandi öryggi, umhverfismál, greiðar samgöngur og tengingu byggða, þá verðum við að finna leiðir til að flýta framkvæmdum á næstu árum. Það þýðir að skoða þarf aðrar fjármögnunarleiðir eins og margoft hefur verið komið að. Þær þurfa að vera aðrar en þær sem eru nú fyrir hendi.

Samgöngur, eins og fram hefur komið, hafa áhrif á okkur öll. Þær eru í rauninni stærsta byggðamálið um leið og þær eru líka heilbrigðismál, menntamál, velferðarmál, umhverfismál, menningarmál og atvinnumál. Það að við skulum hafa borið gæfu til að byggja þó upp það kerfi sem við höfum er grunnurinn að því að við búum við þá velferð sem við höfum á þessu landi. Við eigum eftir að ræða margt varðandi þessi mál. Þetta skiptir okkur öllu máli. Ef við ætlum að byggja upp allt landið áfram og ætlum að nýta öll tækifæri, efla atvinnulíf, tengja byggðakjarna, efla menntakerfið, geta sagt að við höfum heilbrigðisþjónustu um allt land, þá verða samgöngurnar að vera í lagi. Þær hanga með öðrum innviðum sem eru ljósleiðaratengingar um allt land og það er mjög ánægjulegt að sjá fyrir endann á því verkefni sem einhvern tímann hét „ljós í fjós“, og skýrir náttúrlega alveg fyrir hvað það stendur.

Það skiptir máli hvernig við tökum á þessu öllu saman. Það hefur verið mjög ánægjulegt að fylgjast með umræðunni hér í dag. Okkur er ekki sama um þessi mál. Við höfum öll skoðanir á þeim og þess vegna þurfum við að ætla okkur tíma í samtal um þessi mál og við þurfum að finna leiðirnar. Auðvitað höfum við ólíka sýn á þetta allt, það er bara eðlilegt, en öll viljum við setja öryggið á oddinn. Við þurfum að líta á samgöngukerfið sem eina samfellda heild sem þjónar öllum íbúum og atvinnulífi sem best. Það er eitt af yfirmarkmiðum í samgönguáætlun. Þessi áætlun er sett fram að mörgu leyti með öðrum hætti en fram að þessu hefur verið. Hún er sett fram á einfaldari máta, á skýrari máta. Það eru eingöngu tilgreind allra stærstu verkefnin. Undir þeim eru svo nafngreind önnur verkefni. Það er því margt sem er fram á veg hjá okkur. Það er ágætisþróun í þessu og það hefur verið gaman að fá að koma að þessari vinnu og fá sjónarmið fólks um allt land. Ég þori að fullyrða að ekki hefur komið fram nein gagnrýni á meginmarkmiðin sem sett voru fram. Þau standast tímans tönn, standa fyrir það sem þau segja. Við erum öll sammála um að öryggi þarf að vera efst og yfir og allt um kring. Við þurfum líka að horfa til annarra sjónarmiða eins og byggðasjónarmiða, réttlætismála og annars af þeim toga eins og ég sagði oft á mörgum fundum samgönguráðs. Verkefnin eru æpandi og aðkallandi hér þar sem mesti umferðarþunginn er, flest fólkið er, en það eru svo mörg önnur verkefni. Fjöldamörg börn um allt land ferðast daglega með skólabílum á stórhættulegum vegum. Þau eru alveg jafn mikilvæg og allir aðrir.

Við þurfum að finna leiðina áfram og þess vegna vona ég að við berum gæfu til þess að flýta þessu öllu saman þannig að við getum byggt upp grunnnetið okkar og getum sagt að það sé tilbúið og þá getum við farið að horfa á þetta frá öðru sjónarhorni. Við getum farið að vinna t.d. að því að búa til ýmsa hringvegi sem myndu styrkja atvinnulíf og ferðaþjónustu um allt land og getum í alvörunni farið að búa til ákveðið kerfi á vissum svæðum og tengingar sem við höfum kannski ekki bolmagn til að fara í núna en myndu virkilega styðja atvinnulífið. Með skýrri framtíðarsýn og fastri eftirfylgni þá munum við ná þessum mikilvægu markmiðum og þannig styrkjum við búsetu um allt land og aukum möguleika okkar til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins.

Mig langar bara til að þakka fyrir þessa góðu umræðu sem hefur átt sér stað hérna í dag. Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með henni og hún mun líklega halda áfram á morgun, hæstv. forseti, og áfram mun ég fylgjast með full áhuga og athygli.