fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Mig langar að fara dýpra í eitt af umræðuefnunum sem hún bryddaði upp á, sem er viðhald á vegakerfinu og aukinn viðhaldskostnaður út af aukinni umferð. Eins og kemur fram í umsögn Vegagerðarinnar til fjárlaganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar má aðallega rekja það slit til þungrabifreiða, ekki fólksbíla.
Maður verður að velta því fyrir sér hvort vegirnir þoli til að byrja með slíka umferð. Það kom einnig fram hjá Vegagerðinni fyrir nefndinni að mjög margir vegir eru ekki rétt merktir gæðalega séð, samkvæmt EuroRAP stöðlum. Ýmsir vegir sem eru merktir C8 í gögnum Vegagerðarinnar eru bara C7-vegir samkvæmt öllum ströngustu stöðlum og bera þannig séð ekki eins mikla umferð og mikinn þunga.
Er samgöngukerfið í rauninni verr statt en það lítur út fyrir að gera á pappír, sérstaklega með tilliti til greiningar Samtaka iðnaðarins um hversu mikil bæði nýbyggingarþörf er í samgöngukerfinu og viðhaldsþörf þar ofan á? Hvaða hlutverk spila auknir þungaflutningar þegar kemur að álaginu og kostnaði, sem í raun ætti dreifast á flutninga í stað almenna farþegans eða þess sem keyrir daglega á litla fólksbílnum sínu og veldur ekki sliti.