149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[23:29]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir ágætisandsvar. Það hefur svo margt breyst í samfélagi okkar. Kröfurnar hafa breyst gríðarlega. Við viljum alltaf geta komist á milli staða, sem eykur álagið. Það eru ekki bara við á litlu sætu smábílunum sem förum um vegina heldur við öll, auk þess sem aukning ferðamanna hefur mjög mikil áhrif. Þeir hafa bæst við og kostnaður fylgir slíkri þróun, sem er þó að öðru leyti mjög jákvæð.

Þungaflutningar fóru allir á land fyrir nokkrum árum. Það er ekki langt síðan þungaflutningarnir fóru strandleiðina, fólk nýtti sér hana. Nú er það gjörbreytt með breyttum atvinnuháttum og öðru slíku, ferskum flutningi og ferskri matvöru. Kröfur eru um að allt komist sem hraðast á áfangastað og þá er þessi leið farin. Við skulum ekki gleyma því að borgaður er aukaskattur, þungaskattur, af þungaflutningabílum. Þeir borga meira en litlu bílarnir og það má ekki horfa fram hjá því.

Það er því bæði breytt samfélagsgerð, breyttar kröfur og breyttar áherslur. Það er ekkert langt síðan fólk fór ekkert yfir vetrarmánuðina því að það var allt ófært. Þar sem ég þekki best til á norðausturhorninu varð ófært á haustin. Þá fórum við kannski ekki neitt. Það var rutt einu sinni og þá var tækifærið notað. Það er alveg undarlegt stutt síðan það var. Aukin umferð kallar náttúrlega á meira viðhald. Þetta kostar allt. Merkingar kostar líka, kröfur um auknar merkingar. Ég mynd vilja ræða það betur í seinna andsvari.