149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[23:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Vissulega kosta þungaflutningar meira vegna þungaskatts og ýmislegs annars, en kosta þeir 10.00 sinnum meira en fólksbílar? Nei, það er ekki heldur raunin varðandi veggjöld. Samkvæmt greiningu Vegagerðarinnar á ákveðnum þunga bíla valda stærstu bílarnir u.þ.b. 10.000 sinnum meira álagi en venjulegir fólksbílar. Þá veltir maður fyrir sér: Ættu þeir ekki að borga 10.000 sinnum meira? Mögulega væri líka hægt, af því að það er ákveðinn ferningskostnaður eða álag með tilliti til þyngdar stórra bíla, miðað við að keyra á léttari bílum, að hafa hvata til að vera með léttari flutningabíla eða léttari rútur. Þannig væri hægt að spara tvöfalt, með minna álagi sem þýddi minna viðhald. Það væri t.d. hægt að leggja til styrki eða eitthvað því um líkt til þess að frekar væri farið um á minni og léttari bílum, sérstaklega í kringum ákveðna álagspunkta eins og vorleysingar þegar vegirnir er einstaklega viðkvæmir. Það kostar meira að fara tvær ferðir á tveimur léttari bílum en viðhaldskostnaðurinn gæti samt borgað sig. Við erum kominn í það mikinn viðhaldskostnað. Í staðinn fyrir að vera með 10 milljarða á ári í viðhaldskostnað gætum við verið með 5 milljarða á ári. Það eru 5 milljarðar til að styrkja jafnvel einhvers konar framkvæmdir til að létta álag á vegum.