149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[23:33]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er skemmtilegt sjónarmið sem þingmaðurinn kemur fram með. Það má líka horfa á málið frá öðru sjónarmiði. Hvað leggja slíkir flutningar til samfélagsins? Tökum fiskflutningabílana með fullan farm af dýrmætri vöru, fjárflutningabílana og þá sem flytja kjötið og allt annað sem við framleiðum. Þetta má reikna út frá ýmsum hliðum, eftir því hvaða sjónarmið við höfum.

Ég hef ekki þekkingu eða kunnáttu til að segja til um hvort hægt sé að hafa léttari bíla eða léttari vöru, en þurfum við ekki að horfa á einhver öryggissjónarmið? Er léttari bíll sem tekur á sig meiri vind í hálku upplögð hugmynd? Ég veit það ekki. Ég velti því fyrir mér. Þetta má skoða frá öllum hliðum. Ef við erum að tala um veggjöld er jafnvel hægt að stýra því eitthvað í gegnum þau. Ég held að það sé punktur sem sé vel hægt að skoða. Ég vona að þingmaðurinn taki undir það.

En þetta er gott, við komumst áfram, fáum fleiri hugmyndir og getum rætt málin á víðari grundvelli.

Ég kom inn á áðan kröfur um aukna þjónustu í vegakerfinu en þær eiga ekki aðeins við um beint viðhald á vegunum sjálfum heldur líka kröfur um auknar merkingar, auknar leiðbeiningar. Einhvern tímann heyrði ég að einn sandstormur á Suðurlandinu skemmdi vegmerkingar og skilti og að töluverður kostnaður væri við að halda því öllu í lagi. Þetta er að breytast hratt. Við erum í örri þróun, sem er gott og jákvætt og við ætlum að halda áfram, en við þurfum að hafa kjark og þor til að mæta henni og finna leiðir.