149. löggjafarþing — 63. fundur,  6. feb. 2019.

lengd þingfundar.

[15:06]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (U):

Herra forseti. Ég verð nú að koma hingað upp þar sem við þingmenn utan flokka höfðum ekki hugmynd um að þessi fundur hæfist á atkvæðagreiðslu. Ég kem inn á hlaupum til að ná atkvæðagreiðslunni. Þetta er ekki hægt. Þetta er ekki boðlegt. (Gripið fram í.) Það er ekki boðlegt að kynna okkur það ekki ef á að hefjast fundur með atkvæðagreiðslu. [Frammíköll í þingsal.]