149. löggjafarþing — 63. fundur,  6. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[16:38]
Horfa

Frsm. minni hluta umhvn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland kærlega fyrir þessa yfirferð og ræðuna um samgönguáætlun. Mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann, sem er mjög umhugað um kjör þeirra sem hafa það lakast í samfélaginu — það hefur heldur betur verið áberandi í störfum hennar hér á þingi: Í umræðunni um veggjöld hefur verið talað um að meðalkostnaður í Hvalfjarðargöngin hafi verið 600 kr. ferðin, sumir hafi borgað 1.000 og þeir sem voru með afsláttarkort borguðu minna, en meðalkostnaðurinn hafi verið 600 kr.

Nú erum við að tala um áætlaðan meðalkostnað. Framkvæmdir eru ekki hafnar og við vitum að framkvæmdir á vegum hins opinbera hafa tilhneigingu til að verða mun dýrari en áætlað er í byrjun. En miðað við það reiknilíkan sem við erum með núna er áætlað að kostnaðurinn frá Reykjavík og austur á Selfoss/Hveragerði verði um 400 kr., þessi meðalkostnaður. Einhverjir borga aðeins minna og einhverjir borga þá meira. Telur hv. þm. Inga Sæland að þessi kostnaður, 400 kr. á ferðina, 800 kr. á dag fram og til baka, hafi skerðandi áhrif á lífsgæði einstaklinga úr þeim hópi sem hún talar um, þeirra sem þurfa daglega að sækja heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðið, nám eða vinnu?