fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta eru mjög mikilvæg mál sem hann kom inn á, mál sem eru rakin í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Það skiptir máli að horfa til persónuverndarsjónarmiða við útfærslu á gjaldtöku. Það eru ýmsar leiðir til. Það er mikilvægt að horfa til nágrannalandanna. Það þarf að gæta jafnræðis og í því sambandi hef ég einmitt verið að velta fyrir mér þessu með leiðirnar. Það er þjóðvegur 1. Allir flutningar út á land, eins og hv. þingmaður kom inn á, og mikið af flutningum út úr landinu þurfa að fara einmitt eftir þjóðvegi eitt, eftir þessum aðkomuleiðum til höfuðborgarinnar og ferðamenn fara hér um. Þeir einu sem þurfa kannski aldrei að fara þær leiðir eru ferðamenn sem koma með Norrænu til Seyðisfjarðar og hugsanlega einhverjir (Forseti hringir.) höfuðborgarbúar sem aldrei færu út á land, ef við ímyndum okkur þá.