fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni fyrir ræðuna. Mig langaði að spyrja út í hvernig hv. þingmanni lítist á hugmyndir um skosku leiðina. Nú er hann í landsbyggðarkjördæmi þar sem flogið er á nokkra staði í kjördæminu. Við erum með Bíldudalsflugvöll, Ísafjörð, Gjögur. Síðan er, eins og hv. þingmaður bendir á, Alexandersflugvöllur í grunnneti. Skoska leiðin gæti náttúrlega ýtt undir að þar yrði hægt að hefja flug á betri forsendum en hefur verið reynt, síðast fyrir ári. Það væri áhugavert að heyra hvaða hug hann hefur til skosku leiðarinnar og þeirra hugmynda.
Síðan um fjármögnun flugvallanna og hvaða hugmyndir liggja fyrir í meirihlutaáliti umhverfis- samgöngunefndar um flugvallarstarfsemi landsins. Það voru teknar ákaflega slæmar ákvarðanir 2009, 2010, sem ég benti á í ræðu minni fyrr í dag, og duttu út endanlega varaflugvallagjöld sem fjármögnuðu flugvallarkerfi landsins að miklu leyti út 2011. Útreikningar mínir í dag, og ég fann gögn í gær, sýna að það var milljarður tekinn út úr kerfinu sem nýttur var í flugvelli og viðhald og nýframkvæmdir á flugvöllum. Þannig að ástandið hefur versnað. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður hafi kynnt sér umsögn Isavia við samgönguáætlunina, frá 29. nóvember, sem lýsir hvers konar ástand er á flugvöllum eins og Bíldudalsflugvelli og Ísafjarðarflugvelli sérstaklega. Það má benda á að um t.d. Bíldudalsflugvöll segir, svo ég vitni í umsögnina frá Isavia:
„Slitlag flugbrautar og flughlaðs er mjög illa farið, eins og við var búist af fyrri skoðunum flugbrautarinnar og fyrra mati á að klæða hefði þurft flugbrautina á þessu ári (2018).“
Það er í raun verið að tala um það að vítt og breitt þarf að loka flugvöllum á þessu og næsta ári vegna þess hve viðhaldi þeirra hefur verið lítið sinnt. Mig langar að spyrja út í þessi atriði.