149. löggjafarþing — 63. fundur,  6. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[18:33]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið síðara sinni. Vonbrigði? Vegir liggja til allra átta. Það er ekki búið að byggja Sundabrautina og það má teikna eitthvað upp á nýtt og velja henni annað vegstæði, hugsanlega með einhverjum afbrigðum. Ég held að það sé ekki hundrað í hættunni og svo sem ekki orð um það meir.

En ég gleymdi að nefna þetta með ástandið á flugbrautunum. Það er auðvitað áhyggjuefni. Við vitum að ástandið fyrir vestan eins og það er. Ísafjarðarflugvöllur hentar bara minni farþegaflugvélum og því verður ekki breytt. Það eru einhverjir peningar í samgönguáætlun til endurbóta á Bíldudalsflugvelli. En það er auðvitað þetta atriði sem við verðum að taka afstöðu til, held ég: Er grundvöllur fyrir því að byggja einn nýjan góðan flugvöll á svæðinu sem svarar kalli tímans?