fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Þetta er áhugaverð umræða og hefur verið forvitnilegt að fylgjast með þingmönnum úr ólíkum flokkum. Það er þó eitt sem er sameiginlegt og mér finnst mikilvægt að við drögum fram, sem er gott í stjórnmálum: Það er að allir flokkar hafa metnað til að standa vel að samgöngumálum. Allir flokkar hafa metnað, að mínu mati, til að sinna með einum eða öðrum hætti, svo maður noti frægt orðatiltæki, almenningssamgöngum. Það eru mismunandi áherslur, missterkar, misgóðar, en almenningssamgöngur hafa verið ræddar hér, mikilvægar. Ég þakka sérstaklega hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé fyrir að hafa nefnt borgarlínu og vera einn fárra stjórnarþingmanna sem þorir að tala um borgarlínu og mikilvægi þess að tryggja almenningssamgöngur, breyta um hugsunarhátt. Ég vissi upp á mig sökina þegar hv. þingmaður talaði um það, þegar við komum hingað heim eftir að hafa notað allar neðanjarðarlestir í öllum löndum og almenningssamgöngur og fara síðan í minn annars ágæta Prius. En það er eins og það er.
Það hefur verið áhugavert og að ákveðnu leyti notalegt en líka umhugsunarefni að sitja hér í þingsalnum og fylgjast með ýmsum ræðum. Það sorglega sem mér finnst kannski í þessu er að við erum að fara inn í framtíð sem við viljum öll móta. Við viljum öll taka þátt í því. Kosningabaráttan fyrir kosningarnar 2017 og reyndar líka 2016, en áberandi 2017 — allir flokkar og ég held að allir flokkar hefðu getað sameinast um það í ríkisstjórn að efna til stórátaks í samgöngumálum. Síðan kemur að því að við komum mishreint fram gagnvart kjósendum þegar á hólminn var komið.
Tveir stjórnarflokkanna, Framsókn og Vinstri græn, sögðu ekki nokkuð skýrt, þeir sögðu það bara mjög skýrt, forystumenn þessara flokka sitja nú í ríkisstjórn, annar er forsætisráðherra og hinn er samgönguráðherra: Við ætlum ekki að fara í veggjöld, bara alls ekki. Ég man að í síðustu ríkisstjórn, einu frjálslyndu ríkisstjórninni á síðari árum sem starfaði í nokkra mánuði, vorum við í Viðreisn m.a. talin sem fylgitungl Besta flokksins af því að við leyfðum okkur að hafa skoðun á því að hafa ekki veggjöld heldur líka að huga að framtíðarskipulagi varðandi gjaldtöku í samgöngumálum. Við vildum horfa til framtíðar og útilokuðum þar ekki neitt.
Það minnir mig á þau orð sem forsætisráðherra lét falla, hvort það var í þingsal eða annars staðar, að við þyrftum upp á að skapa traust á stjórnmálum, að skoða svolítið hvað við segjum fyrir kosningar og hvað við gerum síðan eftir kosningar. Ég held að hægt sé að taka mýmörg dæmi af kosningaloforðum þeirra ríkisstjórnarflokka sem nú eru og heimfæra upp á hvernig þau hafa verið færð inn í stjórnarsáttmála. Það hefur verið gefinn afsláttur, eiginlega af öllu. Það eina sem þessi ríkisstjórn í rauninni hefur sameinast um og við í Viðreisn höfum margítrekað er sameining um ákveðna kyrrstöðu. Sameining um sérhagsmuni, sem kom náttúrlega berlega fram núna í afgreiðslu veiðigjalda. Og ýmislegt annað má telja.
Það er rétt að við í Viðreisn sögðum bæði í ríkisstjórninni sem við sátum í og líka fyrir kosningar að við myndum ekki útiloka veggjöld. En við drógum alltaf fram að það þyrfti að skoða heildstætt.
Við sögðum líka og lágum undir miklum ámælum, m.a. frá ríkisstjórnarflokkunum sem nú eru, að við vildum kolefnisgjöld. Við vorum gagnrýnd mjög fyrir það að horfa til framtíðar varðandi kolefnisgjöld af því að við vildum taka umhverfismálin alvarlega. Við vildum ekki bara gangast undir það umhverfisskipulag og -stefnu sem t.d. Sjálfstæðisflokkurinn hefur, undir forystu Sigríðar Andersen sem að mínu mati hefur sett fram ákveðna umhverfisstefnu sem birtist síðan mjög skýrlega í loftslagsáætlun ríkisstjórnarinnar. Ég hefði viljað sjá meiri metnað þar.
Kannski er þetta bara allt saman málamiðlun. Enginn fær allt. Það er eins og gengur.
En það sem ég vildi segja í þessu er að við eigum að sameinast um, svo ég reyni að halda mig við málefnið varðandi samgönguáætlun, að reyna að byggja upp það fyrirkomulag sem við getum treyst að gildi eitthvað til framtíðar. Þá meina ég að það geti tekið utan um umhverfismálin eins og við viljum, eins og við rýnum í loftslagsáætluninni sjálfri sem gildir til 2030. Hún er ákveðið plan sem ríkisstjórnin hefur og er um margt ágætt, best að draga það fram. Hæstv. umhverfisráðherra reynir að halda kúrs hvað það varðar, þó að það sé auðvitað ankannalegt að í sjálfri loftslagsáætluninni sé ekki minnst á orðið borgarlína, þá heitu kartöflu, eins og ég hef bent á. Að nefna orðið borgarlína er eins og að segja orðið Macbeth í leikhúsi. Borgarlína, sem gæti einmitt hjálpað okkur í þá veru að ná loftslagsmarkmiðum, bæði Sameinuðu þjóðanna og okkar eigin markmiðum. Á hana mátti ekki minnast. Þetta er auðvitað kaldhæðnislegt. Þetta heitir að ganga ekki hreint til verks, að þora ekki að segja ekki hlutina eins og þeir eru, því að við þurfum að efla almenningssamgöngur. Búið er að fara yfir það mjög vel hér. Stefna okkar í Viðreisn er að styðja vel við almenningssamgöngur. Það er hluti af því að efla borgarskipulag. Það er hluti af því að auka lífsgæði þeirra sem búa í þéttbýli, hvort sem það er hér eða annars staðar á landinu. Ég vil líka draga fram að samhliða því að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, sem er algjört lykilatriði í allri nálgun á uppbyggingu umferðarmannvirkja, uppbyggingu almenningssamgangna eins og borgarlínu, þarf að horfa líka til landsbyggðarinnar. Ég mun koma að því rétt á eftir.
Yfir allt þetta hefur verið farið og við fylgjum þeirri stefnu sem hefur verið mörkuð m.a. af borgarstjórn. En ég vil líka draga fram að það er mikið fagnaðarefni að skynja þá víðsýni sem m.a. hefur verið í Mosfellsbæ, heimabæ hæstv. forseta, sem hefur verið ötull talsmaður þessa, einn af fáum innan Sjálfstæðisflokksins, vel að merkja, og má draga það fram sem vel er gert. Það hefur verið framsýnt fólk í þeim bæjum sem eru í kringum borgina líka. Lögð hafa verið drög að því að fara mjög einart í borgarlínu þó að ég hefði vissulega viljað sjá eindregnari afstöðu og samvinnuyfirlýsingar af hálfu minna eigin bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. En það er önnur saga. Í heildina séð er alveg ljóst að suðvesturhornið einblínir á eflingu almenningssamgangna. Það er líka til þess að styðja við þá sem vilja nota bílinn. Við vitum það að með því að efla almenningssamgöngur erum við líka að greiða leið þeirra sem nota einkabílinn, fyrir utan umhverfisþáttinn.
Síðan er það sem skiptir miklu í þessu, öðruvísi mér áður brá, þegar leiðir í gjaldtöku eru sagðar óútfærðar. Við höfum heyrt Sjálfstæðismenn segja hvern á fætur öðrum að þetta sé nú ekki allt alveg ljóst, sé óútfært. Það eina sem við vitum er að þetta eru skattahækkanir. Framlögin sem eiga að koma í gegnum veggjöldin eiga ekki að fara í uppbyggingu þeirra mannvirkja sem um ræðir heldur á að dreifa þessu bara einhvern veginn, því að þetta er óútfært.
Það er verið að taka þær vegasamgöngubætur sem varða miklu er kemur að umferðaröryggi — við erum að tala um stofnæðar inn og út úr höfuðborgarsvæðinu — verið að taka þær og setja aftar nema sett verði á veggjöld. Verið er að þvinga höfuðborgarsvæðið, Stór–Hafnarfjarðarsvæðið, inn í veggjaldafyrirkomulag, óútfært veggjaldafyrirkomulag. Við skulum hafa það hugfast að það þýðir ekkert annað en skattahækkanir á fjölmennasta svæði landsins, skattahækkanir í boði Sjálfstæðisflokksins.
Á því ber m.a. borgarstjórnarminnihluti Sjálfstæðismanna líka ábyrgð. Sá minni hluti hefur enga mótstöðu sýnt gagnvart þeim hugmyndum sem eru runnar undan rifjum Sjálfstæðismanna eins og þetta er sett á borð núna.
Það er sorglegt að sjá að samstaðan innan ríkisstjórnarinnar er ekki meiri en sú að í upphafi er talað um að veggjöldin verði ekki sett inn í þetta og ekki sé verið að tala um veggjöld. En síðan er Sjálfstæðisflokkurinn í raun að þvinga samgönguráðherra inn í ákveðið umhverfi án þess að hann hafi í rauninni forystu. Mér finnst enginn bragur á þessu.
Það versta finnst mér í öllu þessu máli — því að við höfum þann metnað sem ég gat um í byrjun til að byggja upp öflugar samgöngur, hvort sem það eru almenningssamgöngur eða annars konar samgöngur á landinu — er að við erum að missa af tækifæri. Ég held reyndar að við höfum tækifæri enn þá. Það er enn þá glufa, ef ríkisstjórnarmeirihlutinn áttar sig á því. En við erum að missa af tækifæri til að fá alla landsmenn með okkur í það að skilja út á hvað ný gjaldtaka gengur. Við erum að missa af því tækifæri að allir flokkar komi að því að byggja upp nýtt gjaldtökukerfi, nýtt kerfi sem byggir upp samgöngur um allt land. Við hefðum átt að taka bifreiðagjöldin, sem nú þegar eru lögð á og eru líka ekkert annað en skattur á bifreiðaeigendur, til endurskoðunar samhliða kolefnisgjaldinu, samhliða því hvernig við getum byggt upp umhverfisvænar samgöngur og aukið lífsgæði allra á landinu, samhliða því að reyna að hraða samgöngubótum.
Það er enginn að draga dul á það að við þurfum að efla fjármagn og auka fjármagn í samgöngur. Við þurfum að gera það. Við í Viðreisn höfum bent á ýmsar leiðir til að mæta því. Það hefði auðvitað verið hægt með veiðigjöldum og alveg óþarfi að nefna það enn og aftur. En við þurfum líka að benda á aðrar leiðir. Við höfum sagt að hægt sé að taka hluta af þeim hlutabréfum sem íslenska ríkið á í bönkunum, t.d. í Íslandsbanka, og breyta þeim í innviðauppbyggingu, innviðauppbyggingarfjármagn, fjárfestingu í innviðum. Þá erum við komin langleiðina með þetta.
En ríkisstjórnin sem hefur sinn ríkisstjórnarsáttmála á því að auka virðingu og samstöðu á þingi en er í þessu máli ekki að leita eftir samstöðu og mér finnst það miður.
Ég segi enn og aftur: Eftir alla þá umræðu sem hér hefur verið og eftir að hafa hlustað á velflestar ræður greini ég ákveðinn samhljóm sem mér finnst sárt, enn og aftur, að sjá ekki ríkisstjórnina myndast við að nýta sér.
Það er líka sorglegt að horfa upp á þessi átök á milli samgönguráðherra B og samgönguráðherra D, sem við vitum alveg hverjir eru. Það hefur bara verið til þess að torvelda málið allt, flækja málið. Það má kannski segja að það hefði verið óskandi í þessu máli eins og svo mörgum öðrum málum sem við erum að sjá núna á liðnum dögum og vikum, að forsætisráðherra hefði tekið þau mál, því að forsætisráðherra er að taka til sín mál ef ráðherrar standa sig ekki. Við sjáum að málaflokkar eins og jafnréttismál eru teknir inn í forsætisráðuneytið af því að forsætisráðherra telur sig geta kannski sinnt þeim betur. Sem er ágætt.
Við erum að sjá húsnæðismálin tekin af húsnæðismálaráðherra, þeim ráðherra sem er í kjarasamningum og hefur m.a. með gerð kjarasamninga að gera. Þau eru tekin inn í forsætisráðuneytið. Við höfum nýlega séð umræðu um matvælastefnu þar sem forsætisráðherra hefur frumkvæði að því að eiga fund með þeim sem framleiða matvæli hér á landi. Og það eru mýmörg önnur dæmi sem hægt er að nefna sem forsætisráðherra er að taka til sín. Það má gagnrýna það. Ég hef gagnrýnt það að mér finnst enginn sérstakur bragur á því að við skipuleggjum Stjórnarráðið eftir því hvaða áhugamál forsætisráðherra hefur hverju sinni. Við fáum hugsanlega forsætisráðherra sem hefur áhuga á hafrannsóknum. Ætlar hann þá að taka til sín Hafrannsóknastofnun þegar þar að kemur?
Mér finnst ekki bragur á þessu en ég skil hæstv. forsætisráðherra að vilja hafa puttana í þessu ef aðrir ráðherrar standa sig ekki í stykkinu. Þess vegna hefði ég gjarnan viljað sjá hana sýna meira frumkvæði í því að hafa skoðun á þeirri samgönguáætlun sem við erum að ræða og stíga svolítið inn á svið og segja: Gott og vel, elsku strákar mínir, nú skulum við bara anda rólega og við ætlum að virkja allan þingheim því að ég finn að við getum náð meiri samstöðu með því að virkja alla flokka í þessa veru. Förum í það sem m.a. stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagt til. Bíðum með helstu breytingar fram á haust af því að verið er að boða breytingar í haust. Verið er að boða nýja áætlun.
Af hverju er þá ekki, hæstv. forseti, hægt að bíða með þessar breytingar fram á haustið, koma á þessu þingi fram með tillögu sem snertir það að við höldum 2019 öruggu, 2020 framkvæmdunum, og síðan reynum við að sameinast um nýtt og betra heildstæðara fyrirkomulag í haust sem felur ekki sjálfkrafa í sér skattahækkunarhugmyndir eins og Sjálfstæðisflokkurinn talar fyrir í þessu þingi í dag?
Auðvitað hefur það aldrei verið þannig að Vinstri grænir hafi verið í einhverri andspyrnu þegar að skattahækkunum kemur. Það er flokkur sem í eðli sínu vill skattahækkanir. Það er ekkert óeðlilegt að engin mótstaða komi af hálfu Vinstri grænna þegar Sjálfstæðismenn rétta út þennan fína skattahækkunarpakka á suðvesturhorninu. En það er enn þá meira miður, að mínu mati, að sjá hvernig þær tillögur fela í sér enn eina tilraunina til að reka fleyg á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Af hverju í ósköpunum er verið að fara þá leið? Af hverju er ekki hægt að hugsa þetta heildstætt? Af hverju þarf að etja landsbyggðinni eða suðvesturhorninu upp á móti landsbyggðinni? Af hverju er það þannig? Af hverju gátum við ekki farið einfaldlega í forgangsröðun á þeim helstu framkvæmdum, sem eru umferðaröryggismál, sem eru brýnar framkvæmdir, líka fyrir landsbyggðina sem og suðvesturhornið, sem tengjast umferðaröryggismálum? Eða flugmálum. Það eru margir áhugamenn um flugmál hér á svæðinu.
Ég hefði líka viljað sjá í samgönguáætlun miklu meiri áherslu á að skoða leiðir til að ná fram hagkvæmni í rekstri innanlandsflugvalla til að styrkja almenningssamgöngur við landsbyggðina en líka til að byggja upp flugvelli sem við erum með til að dreifa m.a. álaginu á ferðaþjónustuna og reyna þannig að ýta þeim stabba sem hingað kemur og dvelur skemur og hefur þar af leiðandi minni tíma til að fara um landið. Af hverju gátum við ekki farið af metnaði enn frekar fram með því að byggja upp t.d. flughlaðið á Akureyri, stækka flugstöðina á Akureyri með það fyrir augum að treysta enn betur innviði ferðaþjónustunnar? Það eru gríðarleg sóknarfæri, eins og við í Viðreisn sáum þegar við fórum í heimsókn á Norðausturland þar sem eru gríðarleg sóknarfæri. Þar er að mínu mati næsta stóra sóknarsvæðið fyrir okkur vegna mikillar uppbyggingar, sem er mjög ánægjulegt.
Ég ítreka við fólk að fara þá leið, ekki síst þegar Dettifossvegurinn er alveg kominn. Þá myndast þar gríðarleg tækifæri.
Það er nefnilega svo gaman þegar við þingmenn, hvort sem er suðvesturhornsins eða annars staðar frá, fáum tækifæri til að hafa skoðun og styðja og efla byggðir landsins, hvort sem er á suðvesturhorninu eða um allt land. Það er til hagsbóta fyrir alla að tala heildstætt um samgöngumál, vegamál og uppbyggingu í flugi. Það er til hagsbóta jafnt fyrir okkur sem búum á suðvesturhorninu og landsbyggðina alla að við reynum að sameinast í þessu öllu.
Þess vegna finnst mér svo sorglegt að sjá þessa uppskiptingu á milli landsbyggðar og þéttbýlis, milli suðvesturhorns og landsbyggðar, sem er í boði ríkisstjórnarinnar. Ég harma það sérstaklega að þetta skuli vera gert með þessum hætti því að við hefðum getað náð miklu betra og almennilegra samkomulagi.
Ég hefði líka viljað sjá hvað varðar flugið að við tækjumst á við flugsamgöngur við höfuðborgina. Það er náttúrlega alveg ljóst að ríkisstjórnin mun ekki ná samstöðu um hvert flugvöllurinn eigi að fara. En við þurfum að halda áfram með það mál. Við þurfum að halda áfram með það að komast að samkomulagi um hvert flugvöllurinn fer. Hann fer fyrr en síðar og það er betra að við höfum skoðun á því til að byggja þetta upp á farsælan hátt og gera það í tengslum við landsbyggðina. Því að ljóst er að það eru fleiri kostir fyrir landsbyggðina en gallar að færa flugvöllinn annað, hvort sem er til Keflavíkur eða annað, sem hægt er að ná samstöðu um, Hvassahraun eða eitthvað annað.
Ég legg áherslu á flugmálin. Við eigum að sýna metnað til þess að tengja landið okkar allt. Við erum með þá stefnu, m.a. í Viðreisn og ég vil trúa því að flestir flokkar hafi þá stefnu að við viljum halda landinu í byggð. Við þurfum þá líka að forgangsraða. Við þurfum að þora að segja að við ætlum að byggja hér upp markvisst, m.a. flugsamgöngur við Ísafjörð, Egilsstaði og Akureyri.
Það verður að fara í umræðu um veggjöld. Við fórum blessunarlega í Hvalfjarðargöngin sem ég held að allir sjái í dag að var farsæl leið. En það var líka boðið upp á aðra leið. Fólk gat valið aðra leið. Það þýðir ekki að segja við Skagamenn núna: Heyrðu, við ætlum að fara aftur í það að innheimta gjöld fyrir göngin sem þið og aðrir landsmenn eruð búnir að borga. Nú ætlum við að fara að rukka ykkur um aðrar vegaframkvæmdir í gegnum göngin. Það þýðir ekki að bjóða upp á það né heldur þýðir að bjóða Suðurnesjamönnum upp á að þeir verði að fara kannski með þyrlu til landsbyggðarinnar til að velja aðra leið en Reykjanesbrautina. Það gengur auðvitað ekki. Reykjanesbær er orðinn fjórða stærsta sveitarfélag landsins og það er í örri uppbyggingu. Það er svæði sem þarf miklu frekar stuðning af hálfu ríkisvaldsins, stuðning til þess að byggja upp heilbrigðisþjónustu, aðrar atvinnugreinar en nú eru á svæðinu. Það þarf að hlúa að innviðunum þar og það verður ekki gert með aukinni skattlagningu á Suðurnesjamenn né aðra landsmenn. (Forseti hringir.)
Við þurfum miklu meiri umræðu um þetta. Við þurfum að vinna þetta betur. Það er hægt að ná samstöðu um vegamálin, miklu meiri en nú hefur verið unnið að. Við í Viðreisn erum tilbúin í það samstarf hvenær sem er.