149. löggjafarþing — 63. fundur,  6. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[19:58]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Forsenda fyrir sjálfbærum samfélögum er að samgöngur séu greiðar. Samgöngukerfi þarf að taka mið af þörfum samfélagsins og íbúa, bæði til að nálgast atvinnu, þjónustu og menningu, þannig að hreyfanleiki fólks verði bættur. Allt eru þetta kröfur sem nútímasamfélag gerir til grunnþjónustu á hverju svæði.

Nú er til umræðu samgönguáætlun fyrir árin 2019–2033. Fyrir liggur nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar sem hefur lagt mikla vinnu í verkið og má þakka fyrir það.

Markmið samgönguáætlunar er skýrt: Að samgöngukerfi landsins myndi samþætta heild og þjóni íbúum og atvinnulífi sem best. Margar leiðir eru að því og sýnist sitt hverjum. Greiðar samgöngur allt árið eru forsenda vaxtar atvinnu og nýsköpunar um landið allt. Á Vestfjörðum er ný atvinnugrein að nema land og það er fiskeldið. Talað er um að fiskeldi gæti orðið með stærstu útflutningsgreinum þjóðarinnar. Nú þegar hefur landinu verður skipt upp eftir því hvar eigi að byggja upp fiskeldi í sjó. Það er á Vestfjörðum, Austfjörðum og við Eyjafjörð. Ljóst er að stærri hlutinn er áætlaður við Vestfirði.

Það er því ljóst að þar er fram undan mikil uppbygging þeirrar atvinnugreinar sem á eftir að skila þjóðarbúinu miklum ávinningi og eru greiðar samgöngur forsenda þess að til takist.

Í framlagðri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að nú skuli koma Vestfjarðavegi til annarra kynslóða og koma þar með suðurfjörðum Vestfjarða til nútímasamgönguhátta. Sú leið er fjármögnuð á fjárlögum og í samgönguáætlun. Hún hefst með Dýrafjarðargöngum, uppbyggingu vegar um Dynjandisheiði og nýrri vegalagningu um Gufudalssveit. Þarna styður samgönguáætlun við þann efnahagslega vöxt sem á sér stað á Vestfjörðum og tryggir örugga grunnþjónustu til að svo megi verða. Með uppbyggingu stofnvega eru búsetugæði aukin og bæta skal samgöngur milli skilgreinda vinnusóknarsvæða og stækka þau þar sem hægt er. Það stuðlar að eflingu atvinnulífs innan og á milli landshluta.

Ég tek undir orð hv. þm. Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur þegar hún nefnir að í nefndarálitinu leggi meiri hlutinn til að flýtt verði sérstaklega framkvæmdum í þágu tveggja jaðarsvæða, þ.e. Árneshrepps á Ströndum og Langanesbyggðar á norðausturhorninu, með vegi um Veiðileysuháls og endurbætum á vegi um Langanesströnd. Þetta skiptir líka máli fyrir nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á svæðum þar sem fólk býr í veikri byggð.

Samgöngur skipta alla máli. Við horfum fram á miklar breytingar. Álagið á samgöngukerfi landsins hefur margfaldast. Vöruflutningar hafa færst á land. Fjöldi ferðamanna á vegum landsins hefur stóraukist og samþjöppun í þjónustu og breytingar í atvinnumálum eru staðreyndir sem breyta flæði umferðar töluvert. Þá skiptir öryggi meginmáli. Gert er ráð fyrir að hraða framkvæmdum á stofnbrautum sem þola ekki bið, m.a. vegna óásættanlegs umferðaröryggis.

Umferð hefur breyst hraðar en gert hefur verið ráð fyrir í fyrri samgönguáætlunum. Þess vegna er samgönguáætlunin með þeim flýtiaðgerðum sem hún boðar.

Það er ánægjulegt að sjá að þær meginstoðir sem samgönguáætlun byggir á er að leggja áherslu á stofnbrautir út úr höfuðborginni og nú skal líka klára grunnnet vegakerfisins á Vestfjörðum. Í heild má segja að meginþráður áætlunarinnar sé að tryggja öryggi vegfarenda jafnframt því að byggja og tryggja bætt samgöngukerfi.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin hefur sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum og stefnir að því að allar stærri áætlanir ríkisins verði metnar út frá loftslagsmarkmiðum. Með framlagðri áætlun má sjá að gert er ráð fyrir að hún taki þátt í því markmiði, með leyfi forseta:

„Stefnt skal að því að samgöngur verði umhverfislega sjálfbærar og að því að draga úr hnattrænum svæðisbundnum umhverfislegu áhrifum samgangna.“

Horft verður til orkuskipta í samgöngumálum. Það þýðir að skilgreina þarf nýja tekjustofna sem renna eiga til vegagerðar og aðrar breytingar þurfa að taka mið af breyttum heimi.

Nokkuð hefur verið talað um gjaldtöku vegna samgöngumannvirkja þegar horft er til einkaframkvæmda og flýtimeðferðar. Til að hraða samgönguframkvæmdum er unnið að útfærslu gjaldtökuleiða sem nýtist ákveðnum mannvirkjum. Slík gjaldtaka á einstaka mannvirkjum býr til svigrúm í samgönguáætlun og hægt er að ráðast fyrr í önnur verkefni en gert er ráð fyrir. Þá erum við að tala um að hraða uppbyggingu tengivega um allt land sem eru komnir á tíma og þola enga bið.

Til að ná fram markmiðum samgönguáætlunar um að tryggja greiða og örugga stofnvegi um allt land þarf að þora að taka ákvörðun um breytta tekjustofna án þess að skerða aðra grunnþjónustu eins og heilbrigðis- eða menntakerfi.

Í nefndaráliti minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar er talað um að skyndilegar hugmyndir meiri hlutans um veggjöld hafi breytt þeirri vinnu sem nefndin var í og komið í veg fyrir faglega vinnu nefndarinnar við samgönguáætlun. Það vekur undrun að það teljist ekki hluti af faglegri vinnu nefndarinnar að skoða nýja fjármögnunarleið sem vegtollar eru og vissulega hefur það verið hugmynd í nokkurn tíma.

Þeirri sem hér stendur hefur ekki tekist að renna yfir allar þær umsagnir sem bárust við samgönguáætlun, enda hlaupa þær á þúsundum. Ljóst er að umræðan er mikil og því meira en undarlegt ef veggjöldin hefðu ekki verið tekið til skoðunar. Það eru margar umsagnir sem fjalla um veggjöld og maður heyrir, þar sem ég hef farið eftir að þau voru kynnt, að þau vekja nokkra ánægju vegna þess að fólk vill aukið öryggi, bætta vegi og flýtimeðferðir.

Nokkrir hv. þingmenn minni hlutans hafa komið upp og bent á skattpíningu og bent á matarholur sem hægt er að seilast í til að byggja upp vegakerfið okkar. Þar hafa verið nefnd veiðigjöld og bankaskattur. Eins og segir í 1. gr. laga um veiðigjöld eiga þau að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn og eftirlit með fiskveiðum og nú er lagt til að þau renni til uppbyggingar samgöngumannvirkja. Óhætt er að hækka þau til þess arna. Hvernig minni hlutinn ætlar að ná almennri sátt um þá fjármögnunarleið veit ég ekki.

Virðulegi forseti. Meginmarkmiðið við gerð samgönguáætlunar er að samgöngur séu hagkvæmar. Liðir í því að gera samgöngukerfi landsins hagkvæmara til lengri tíma er aukið öryggi vegfarenda, stytting vegkafla, greiðari meginleiðir, minni töf vegfarenda og fjölgun jarðganga. Ég fagna metnaðarfullri samgönguáætlun og vona að hægt verði að hrinda henni í framkvæmd sem fyrst.