staða iðnnáms.
Virðulegur forseti. Ég get sannfært hv. þingmann um að um er að ræða miklar aðgerðir er varða það að auka veg verk-, iðn- og starfsnáms á Íslandi. Ég ætla að nefna eitt dæmi. Nú stendur fyrir dyrum umtalsverð og mikil kynning á iðnnámi, Íslandsmeistaramótið er fram undan og nú á að fara að kynna fyrir nemum í 9. og 10. bekk allt það nám sem er í boði. Áætlað var að samræmd próf í bóklegu námi yrðu á sama tíma en við færðum hreinlega samræmdu prófin til svo nemar gætu sótt þessa kynningu. Verið að gera þetta í fyrsta sinn, að ég tel. Við erum þá með þessum skýru skilaboðum að forgangsraða og segja að íslenskir nemar eigi að hafa sama aðgengi að þessu mikilvæga námi þar sem skortur er á. Þetta er táknræn aðgerð en mjög mikilvæg.
Hv. þingmaður spyr hvort ráðherrann ætli að gera eitthvað í þessu. Já, hann ætlar svo sannarlega að gera það og hefur verið að gera það, eins og hv. þingmaður (Forseti hringir.) hefur líklega tekið eftir.