fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Forseti áréttar að hann mun athuga þetta nánar. Ég var að hugsa um að gera hlé á þingfundi nema menn vilji halda áfram að koma hér upp til að ganga úr skugga um það hvað lögin segja nákvæmlega. Þingmenn eiga að sjálfsögðu rétt á fullum ræðutíma eins og þingsköp kveða á um. En aftur áréttar forseti að það er möguleiki — þingforseti veit að heimildir eru í þingsköpum til að takmarka ræðutíma. Nú ætlar þingforseti að ganga úr skugga um hvort slíkt hafi verið gert áður en lengra er haldið nema einhverjir aðrir vilji koma hingað og ræða fundarstjórn forseta.