149. löggjafarþing — 64. fundur, 7. feb. 2019.
fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
172. mál
Herra forseti. Ég þakka forseta fyrir augljóslega góðan vilja í málinu. Það er auðvitað mjög brýnt að þingmenn njóti hér fyllsta réttar eins og þingsköp kveða á um. Ég vil leyfa mér að leggja það til að gert verði hlé á þessum fundi þangað til þeirri athugun sem hæstv. forseti boðaði að færir fram er lokið.