149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[14:23]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykv. s., hafi boðað forföll og muni víkja af þingi sem varamaður fyrir Ágúst Ólafur Ágústsson.

Óskað hefur verið eftir því að 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Einar Kárason, taki sæti á Alþingi í dag, fimmtudaginn 7. febrúar.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Einari Kárasyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til að fjalla um kjörbréfið.