149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[14:24]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forseta hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komið saman til að fara yfir kjörbréf Einars Kárasonar, 2. varaþingmanns Samfylkingarinnar í Reykv. s., frá landskjörstjórn. Varð það samhljóða niðurstaða nefndarinnar að gera ekki athugasemdir við kjörbréfið.