149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[14:29]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Með þessari samgönguáætlun er almenningi stillt upp við vegg: Peningana eða lífið, segir ríkisstjórnin, eins og bófarnir í Lukku-Láka forðum. Hvers vegna segi ég það? Vegna þess að allar mikilvægustu samgönguúrbætur áætlunarinnar eru teknar út úr áætluninni. Allar úrbætur á lífshættulegum vegum, sem ættu að vera í fyrsta forgangi, verða ekki að veruleika nema almenningur reiði fram peningana í formi veggjalda, eða búi áfram við lífshættulega vegi um landið vítt og breitt.

Hvernig sem á þessar óljósu áætlanir og hótanir er litið er ljóst að veggjöld munu leggjast þyngst á þá sem minnst hafa. Við stöndum ekki í vegi fyrir því að ríkisstjórnin setji sér samgönguáætlun en við mótmælum þessari forgangsröðun og við mótmælum þeirri uppstillingu að fólk þurfi að velja á milli þess að hafa örugga vegi eða borga veggjöld.